Kaupendur á húsnæðismarkaði eru í sterkari samningsstöðu en áður, segir yfirhagfræðingur hjá Húsnæðis-, mannvirkja- o skipulagsstofnun (HMS). Kaupgeta er þó takmörkuð og íbúðaverð hátt.
Í maí seldust um 77% íbúða á höfuðborgarsvæðinu undir auglýstu söluverði. Hlutfallið hefur ekki mælst hærra síðan í apríl 2020. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu HMS.
Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, segir kaupendur í sterkari samningsstöðu en áður.
„Þeir geta gefið sér meiri tíma í að skoða eignir áður en þeir kaupa og ákveða hvort þeir vilji kaupa þessa eign og hafa meira að segja um kaupverð á eigninni. Kaupgeta er hins vegar takmörkuð þar sem vextir eru háir og lánþegaskilyrði þröng og íbúðaverð hátt í sögulegu samhengi.“
Hlutfall seldra íbúða undir auglýstu verði hefur hækkað jafnt og þétt síðustu tvö ár, segir Jónas.
„Við erum núna á svipuðum stað og við vorum 2019 en þá var líka ágætis kólnun á fasteignamarkaði. Við höfum eiginlega séð stöðuga þróun frá árinu 2024 þegar þenslan var mikil á fasteignamarkaði út af rýmingunni í Grindavík.“
Sjö mánuði tæki að selja allar íbúðir sem eru á sölu
Meðalsölutími húsnæðis hefur lengst töluvert og áætlaður sölutími sömuleiðis, þ.e. hversu lengi það tæki að selja allar íbúðir sem eru á sölu núna.
„Áætlaður sölutími, eða það sem við köllum birgðatíma, er núna um það bil sjö mánuðir á höfuðborgarsvæðinu en var í kringum tveir mánuðir þegar fasteignamarkaðurinn var sem heitastur á tímum heimsfaraldursins.“
Jónas segir vaxtastigið skipta mestu máli hvað varðar verðþróun og eftirspurn á íbúðamarkaði.
„Það er örugglega öruggt að álykta að vaxtahækkanirnar sem áttu sér stað fyrr í ár séu að skila sér inn á markaðinn en hafa ekki gert það að fullu leyti. Ef vextir lækka gæti eftirspurnin aukist aftur en ef vextir haldast svona háir má búast við köldum markaði.“