Karl G. Kristinsson, læknir og prófessor emeritus í sýklafræði, segir að blikur séu á lofti hér á landi þegar kemur að sýklalyfjaónæmi. Ísland hefur um langt skeið verið í hópi þeirra landa þar sem sýklalyfjaónæmi er hvað minnst.Karl bendir á í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að sú staða sé ekki sjálfgefin. Ný gögn sýni aftur á móti að tilfellum fjölónæmra (ESBL/AmpC-myndandi) Eschericia coli og skyldra baktería hafi meira en þrefaldast á Íslandi á aðeins tíu árum.
Karl varar við ógnvænlegri þróun: Hættulegar bakteríur sækja í sig veðrið á Íslandi