Kaldur byggingamarkaður kólnar enn meira

Kaldur byggingamarkaður kólnar enn meira

Kaldur byggingamarkaður kólnar enn meira

Frá því í mars hefur íbúðum í byggingu fækkað um 11% og hátt í 1.900 nýjar íbúðir eru tilbúnar en óseldar – 85% fleiri en þær voru fyrir ári síðan.

Þetta kemur fram í nýrri greiningu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, sem kynnt var þriðjudaginn 22. september. Skýrslan var kynnt á fundi og er hægt að horfa á upptöku á vef HMS.

„Ef maður horfir á þau verkefni sem eru í startholunum þá fáum við einhverja mynd af markaðnum eins og hann verður eftir nokkur ár og þar sjáum við viðvörunarmerki,“ segir Jónas Már Gunnarsson yfirhagfræðingur HMS. Þá safnist óseldar íbúðir upp og margar hafi verið til sölu í meira en eitt ár.

„Þarna held ég að skipti hvernig þessar íbúðir eru og hvort þær hafi verið byggðar fyrir þann markað sem er til staðar.“

HMS telur allar íbúðir í byggingu tvisvar á ári, í mars og í september. Talningin sýnir svart á hvítu að mikill samdráttur hefur orðið á byggingamarkaði frá því í vor.

Aldrei færri nýjar framkvæmdir og aldrei fleiri tómar íbúðir

HMS byrjaði að telja íbúðir í byggingu 2021. Síðan þá hafa nýjar framkvæmdir aldrei verið færri og aldrei hafa jafnmargar nýjar íbúðir staðið tómar.

Íbúðir á fyrstu þremur byggingar- eða framvindustigum hafa heldur aldrei verið færri.

Á síðustu sex mánuðum hófst vinna við byggingu um 770 íbúða en það er helmingi minna en á sex mánuðunum þar á undan – og það sem meira er: Í mörgum tilfellum var framkvæmdum hætt á fyrsta byggingarstigi – en þá er bara jarðvinnunni lokið en engar eiginlegar byggingarframkvæmdir hafnar.

Ef vextir haldast háir versnar staðan bara

Mest hefur kólnunin verið í nágrenni höfuðborgarsvæðisins. Þar hefur nýjum framkvæmdum fækkað mest og íbúðum sem ekki seljast hefur líka fjölgað hlutfallslega hraðast.

Jónas Már segir að byggingarfyrirtæki hafi, með því að ganga á sjóði sína, haldið ágætum dampi við erfiðar aðstæður en nú séu sum farin að kikna.

Byggingamarkaðurinn sé næmur fyrir háum vöxtum. „Ef vextir haldast svona háir þá mun staðan bara versna hjá byggingaverktökum,“ segir hann.

Ekki byggt í samræmi við íbúðaþörf en samt standa íbúðir tómar

Byggingaverktakar hafa ekki bara dregið úr nýframkvæmdum, þeir hafa líka í einhverjum tilfellum látið staðar numið við hálfbyggð hús. Íbúðum þar sem ekkert hefur þokast í framkvæmdum fjölgaði um 38% á milli talninga. Um 750 íbúðir hafa verið á sama byggingarstigi síðan í september 2025 eða lengur.

HMS gerir ráð fyrir að lokið verði við um 2.500 íbúðir á ári að meðaltali á næstu árum, eða til ársloka 2027. Þetta eru mun færri íbúðir en svokölluð íbúðaþörf segir til um.

Í árslok 2024 taldi HMS þörf á að byggja um fjögur þúsund íbúðir á ári til 2050. Í ljósi þess að ekki hefur verið byggt eins mikið og íbúðaþörfin mælir fyrir um en engu að síður eru fjölmargar óseldar íbúðir, er ekki úr vegi að spyrja Jónas Má hvort íbúðaþörfin hafi mögulega verið ofmetin.

Hann telur svo ekki vera. Metin íbúðaþörf sé háð mikilli óvissu en hún fari mjög eftir því hversu hratt landsmönnum fjölgi. Þeim hafi fjölgað hægar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nú megi gera ráð fyrir að það þurfi að byggja um 3.000 íbúðir á ári miðað við spár sveitarfélaga og íbúðaskuld, enda hafi ekki verið byggt í samræmi við þörf í nokkur ár.

„En það er að það séu til tómar íbúðir, um leið og það er íbúðaþörf er alveg eðlilegt í þessu ástandi sem við erum í núna, þar sem fólk getur ekki keypt sér út af erfiðum markaðsaðstæðum,“ segir hann.

Eftirspurn eftir íbúðum fari eftir vaxtastigi, launum og öðrum efnahagslegum aðstæðum. Þær séu ekki góðar og því fresti fólk íbúðakaupum.

Ef ekki er byggt í samræmi við íbúðaþörf getur myndast verðþrýstingur. „Húsnæði verður dýrara fyrir alla,“ segir Jónas Már.

Raunverð haldi áfram að lækka

Eins og fyrr segir fjölgaði nýjum óseldum íbúðum hratt á milli talninga HMS. Stór hluti af þeim var líka óseldur í vor og það er því ljóst að margir verktakar hafa verið með mikið fjármagn bundið í óseldum íbúðum í langan tíma. Þetta hefur haft áhrif á íbúðaverð og Jónas Már telur að áhrifin séu ekki öll komin fram. Raunverð hafi lækkað og búast megi við að raunverð haldi áfram að lækka.

Töluvert hefur verið rætt um að ef til vill hafi framboðið ekki verið í takti við eftirspurnina. Jónas Már segir að byggt hafi verið töluvert af stærri íbúðum, þ.e. á bilinu 80-100 fermetrar, en minna af smærri íbúðum.

„Það eru ýmsar íbúðir sem eru hátt verðlagðar, miðað við kaupendahópinn akkúrat núna, þar sem kaupgeta er skert.“ Sá markhópur sem hefði að öðrum kosti keypt þessar stóru íbúðir geti ekki keypt þær.

Ekki byggt í samræmi við búsetuóskir

Fram kom á fundinum í gær að fjórar af hverjum fimm íbúðum í byggingu eru í fjölbýlishúsum.

Í Reykjavík eru nánast eingöngu byggðar íbúðir í fjölbýli. Fjölbreytnin er aðeins meiri í nágrannasveitarfélögunum en hún er mun meiri utan höfuðborgarsvæðisins.

Á fundinum var vitnað í könnun sem HMS gerði í vor um búsetuóskir Íslendinga. Þar kom fram að meirihlutinn vill búa í litlum eða meðalstórum fjölbýlishúsum. Lítil fjölbýli eru með allt að átta íbúðum en meðalstór með allt að 16 íbúðum.

Uppbyggingin hefur ekki verið í takti við þessar niðurstöður því um 85% allra fjölbýlishúsa sem hafa verið byggð á höfuðborgarsvæðinu undanfarið teljast vera stór fjölbýli.

„Sveitarfélögin hafa skipulagsvald og geta ákveðið hvernig hverfi og bæi þau skipuleggja. Ég held að það sé öllum til heilla að hverfi og bæir séu skipulagðir fyrir fólk sem er til og í samræmi við vilja fólks. Þannig að það er okkar ósk að sveitarfélögin nýti sér þessar upplýsingar og við vitum að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu eru að horfa til þessa,“ segir Jónas Már Gunnarsson yfirhagfræðingur HMS.

#byggingamarkaður #enn #kaldur #kólnar #meira


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-23-kaldur-byggingamarkadur-kolnar-enn-meira-487822

📰 Aðrar fréttir

Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna
Fræðsluáróður ríkisstarfsmanna Fréttin24. september 2026Aðsend grein, Innlent, RÚV, TransmálLeave a Comment Samsett mynd: Fh. Ragnar Bjarnason, Eldur ...
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
📅 24.09.2026 👁️ 0
Um 40 börn í rútu sem fauk út af veginum um Fagradal
Rúta með rétt um 40 grunnskólabörnum innanborðs fór út af veginum ofarlega á Fagradal á milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í morgun.Í tilkynningu frá L...
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
📅 24.09.2026 👁️ 0
Lögreglunemi sakaður um ósæmilegt látbragð í forgangsakstri
Nefnd um eftirlit með lögreglu mun ekki aðhafast frekar vegna kvörtunar yfir því að lögreglumaður, sem raunar mun líklega hafa verið lögreglunemi, hef...
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
📅 24.09.2026 👁️ 0
Barnastjarnan sem lék Sollu Stirðu gerbreytti um stefnu í lífinu – Svona lítur hún út í dag
Barnastjarnan Julianna Rose Mauriello, sem í mörg ár fór með hlutverk Sollu Stirðu í barnaþáttunum um Latabæ, hefur gerbreytt um stefnu í lífinu. Maur...
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Þetta eru skilaboðin sem Guðmundur Ingi fékk: „Ég hafði enga orku í að vera í stríði“
RÚV hefur birt skilaboðin sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann var mennta- og barnamálará...
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Birtir skila­boð um upp­sögn: „Kominn tími á að sann­leikurinn komi í ljós“ - Vísir
„Þetta er að koma fram núna út af því sem hefur gengið á undanfarið, bæði vegna yfirlýsinga Ingu en líka yfirlýsinga frá Ragnari Þór þar sem hann svar...
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fury vs Joshua: Cardiff to host heavyweight fight on 11 December
Cardiff's Principality Stadium will host Anthony Joshua and Tyson Fury's all-British heavyweight fight on 11 December.
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
📅 24.09.2026 👁️ 0
Skólabörn fengu áfallahjálp eftir að rúta ók út af í hvassviðri
Börnin sem voru í rútunni sem ekið var út af veginum á Fagradal í morgun voru grunnskólabörn úr þremur skólum í Múlaþingi. Þau voru á leið á Starfames...
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð Að­stoð­ar­kona Guð­mund­ar Inga Krist­ins­son­ar, fyrr­ver­andi barna- og men...
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Bókun 35 og ó­veður setur strik í reikninginn - Vísir
Fyrsta alvöru haustlægðin gengur nú yfir landið og hafa fleiri viðvaranir bæst við þær sem gefnar voru út í gær. Veðurfræðingur segir spár hafa gengið...
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Pallborð: Klukkan tifar og staðan sögð við­kvæm - Vísir
Staðan er sögð viðkvæm og kröfur aðila ólíkar. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR mætast...
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
📅 24.09.2026 👁️ 0
Elephants treat themselves with medicinal plants, witnesses say
African elephants use dozens of different medicinal plants to treat themselves and their families when they are sick, research reveals.
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Danir vara við aukinni ógn frá Rússum - Vísir
Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi Jeppe Bruus varnarmálaráðherra, Thomas Ahrenkiel yfirmanni leyniþjónustu danska hersins og Michael ...
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 0
New €5.14m lifeguard and beach safety service for South Tenerife
A new €5.14 million beach surveillance, rescue and assistance service has been launched by Arona Council, bringing longer lifeguard hours, additional ...
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
📅 24.09.2026 👁️ 0
Poland says fire at Starlink station is sabotage as Denmark warns of rising Russian threat
The satellite station is used in part to provide internet coverage to neighbouring Ukraine, the government says.
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Rúta með skóla­börn um borð fór út af veginum - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Austurfrétt greindi fyrst frá. Björgunarsveitir frá ...
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
📅 24.09.2026 👁️ 0
Guðmundi Inga settir afarkostir í skilaboðum: Afsögn eða stríð
Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, sem var aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar þegar hann gegndi embætti mennta- og barnamálaráðherra, þrýsti á hann...
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
📅 24.09.2026 👁️ 0
Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús
Danskir og grænlenskir ráðamenn fullyrða að samningurinn skerði í engu fullveldi konungsríkisins Danmerkur. Í Heimsglugganum var rætt við hina grænlen...
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
📅 24.09.2026 👁️ 0
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar
Trúarlegt framhjáhlaup Viðreisnar Fréttin24. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skr...
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
📅 24.09.2026 👁️ 0
Eiginkona Schumacher opnar sig – Lagið þeirra fær hana enn til að gráta
Corinna Schumacher, eiginkona Formúlu 1-goðsagnarinnar Michael Schumacher, opnar sig um samband þeirra og lífið eftir skíðaslysið örlagaríka í nýrri h...
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Sigríður miður sín yfir stöðunni: „Öllum virðist skítsama, því miður“
Sigríður Sigurðardóttir, fyrrverandi lektor við Háskólann á Hólum, er ómyrk í máli um stöðu íslenskunnar í miðborg Reykjavíkur og víðar. Rætt er við S...
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Móður blöskraði í Krossmóa: „Verri aðstöðu er varla hægt að finna á Íslandi“
Móðir segist viss um að verri skiptiaðstöðu sé varla hægt að finna á Íslandi en í verslunarmiðstöðinni við Krossmóa í Reykjanesbæ. Hún vakti athygli á...
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Læknar svara Snorra og fleirum: „Moldviðri sem er verið að þyrla upp með rangfærslum og vitleysu“
Læknar í trans teymi barna og unglinga á Landspítalanum segja að umræða um hormónameðferðir barna séu á villigötum, hafna læknarnir því að kynin séu b...
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Þakplötur og trampólín á flugi - Vísir
Gul viðvörun er í gildi á sunnanverðu landinu og hafa björgunarsveitir sinnt nokkrum útköllum vegna veðurs. Á Hvolsvelli og Hellu fuku ferðahýsi og tr...
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
📅 24.09.2026 👁️ 0
Gervigreind OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almennasjúkratryggingakerfis Ástralíu
Gervigreindarlíkan tæknifyrirtækisins OpenAI hakkaði sig inn í tölvukerfi almenna sjúkratryggingakerfis Ástralíu, Medicare-kerfið. Fyrirtækið lét ástr...
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 0
Gold bars worth €12,000 stolen during home renovation in Tenerife
Three people have been arrested after three gold bars worth around €12,000 were stolen from a home in La Laguna while renovation work was being carrie...
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
📅 24.09.2026 👁️ 0
Hægt á verðhækkunum á matvöru – Grænmeti hækkaði mest
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands lækkaði um 0,11% milli ágúst og september 2026. Hægt hefur á verðhækkunum á matvöru síðustu mánuði eftir miklar...
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
📅 24.09.2026 👁️ 0
RAF Valley pilots ejected from crash on Anglesey expected to make full recovery
The Hawk T2 aircraft had been flying out of the RAF Valley station when it plummeted to the ground.
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leik­maður og þjálfari - Vísir
Birgitta Haukdal er þekkt fyrir skemmtilegan klæðaburð á tónleikum og gaf hún ekkert eftir á því sviði í þættinum. Hún mætti í raun klædd sem fimleika...
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Óttast að börn með Downs muni ekki lengur fæðast á Ís­landi - Vísir
Greint var frá því í morgun að á Landspítala sé nú unnið að því að innleiða nýja tegund fósturskimunar, NIPT, fyrir verðandi mæður. Með nýrri aðferð e...
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
📅 24.09.2026 👁️ 0
Rúta með 40 skólabörnum hafnaði utan vegar
Rúta með 40 skólabörn um borð hafnaði utan vegar í Fagradal fyrir skömmu. Viðbragðsaðilar eru á vettvangi. Ekki er talið að neinn hafi slasast.Þetta s...
Xi fékk óvenju góðar móttökur hjá Trump
📅 24.09.2026 👁️ 0
Xi fékk óvenju góðar móttökur hjá Trump
Xi Jinping, forseti Kína, kom til Bandaríkjanna í gær. Hann á fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu síðar í dag.Það vakti athygli að ...
Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife
📅 24.09.2026 👁️ 0
Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife
HomeTenerifeDrunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife Drunk holidaymaker rescued as current sweeps him away in Tenerife 24-09-...
Skortir fólk til að ná tökum á stjórn­lausri ebólu - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Skortir fólk til að ná tökum á stjórn­lausri ebólu - Vísir
AP fréttaveitan hefur eftir Marie Roseline Belizaire, yfirmanni neyðarviðbragða í Afríku hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni (WHO), að enn sé ekki búi...
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
📅 24.09.2026 👁️ 0
Krónan frystir verð á 647 vörum: „Mikilvægt að allir leggi sitt af mörkum“
Krónan ætlar að frysta verð á 647 vörum fram að áramótum til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heim...
Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Borgarverk með lægsta boð í Þjórs­ár­brú og Búðafossveg - Vísir
Alls bárust fimm tilboð í verkið og var tilboð Borgarverks það eina undir áætluðum verktakakostnaði og munaði þar 376 milljónum króna. Næstlægsta boð ...
Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 0
Meint kyn­ferðis­brot leikskólastarfsmanns til á­kæranda - Vísir
Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari í samtali við fréttastofu. Málið kom á borð ákæranda þann 14. september og er hans hlutver...
Björgunarsveitir aðstoða á Hvolsvelli og Hellu
📅 24.09.2026 👁️ 2
Björgunarsveitir aðstoða á Hvolsvelli og Hellu
Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa sinnt nokkrum fjölda útkalla vegna fjúkandi lausamuna á Hvolsvelli og Hellu. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrú...
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
📅 24.09.2026 👁️ 1
20 ára deilur Stallone og Schwarzenegger voru „líf og dauði“
Sylvester Stallone hefur tjáið sig umfang deilunnar við Arnold Schwarzenegger, sem stóð yfir í meira en tvo áratugi. Einhverjir hafa talið að deilan h...
Kengúrur á flótta á Jótlandi
📅 24.09.2026 👁️ 2
Kengúrur á flótta á Jótlandi
Vegfarendur í Give á Jótlandi eru beðnir um að sýna aðgát af æði sérstökum ástæðum. Danska ríkisútvarpið greinir frá því að lögreglunni á Jótlandi haf...
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
📅 24.09.2026 👁️ 1
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins
Bandarískur dómari stöðvar fjölmiðlabann Hvíta hússins Banda­rísk­ur al­rík­is­dóm­ari hef­ur fyr­ir­skip­að Trump-stjórn­inni að hleypa frétta­mönn­u...
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent
📅 24.09.2026 👁️ 2
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent
Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent Nor­egs­banki hækk­aði stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig í morg­un til að vinna gegn verð­bólgu. Bank­inn seg...
Dómari snýr við fjölmiðlabanni Trumps
📅 24.09.2026 👁️ 2
Dómari snýr við fjölmiðlabanni Trumps
Donald Trump Bandaríkjaforseti þarf að veita fjölmiðlunum CNN, MS NOW og Politico aftur aðgang að Hvíta húsinu. Þetta er niðurstaða dómstóls í Washing...
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 2
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor - Vísir
Parið byrjaði að slá sér upp árið 2018 eftir að systir hans kynnti þau. Þau trúlofuðu sig árið 2021 og gengu í hjónaband í nóvember 2022. Þar tók hún ...
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Allt kemur í ljós ef maður á geisla­drif - Vísir
Þeir sem vilja taka tónlistina með sér heim þurfa hins vegar að eiga geislaspilara, því platan verður fyrst um sinn ekki aðgengileg á netinu. Það er g...
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
📅 24.09.2026 👁️ 1
Telur kosninga­svik ekki hafa á­hrif á stjórnar­myndun - Vísir
Sænska lögreglan rannsakar ásakanir um að fólki hafi verið borgað fyrir að greiða lítt þekktum frambjóðanda Vinstriflokksins atkvæði í persónukjöri í ...
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
📅 24.09.2026 👁️ 1
County Durham breast cancer failure bosses to review 4,500 more cases
Hospital chiefs in County Durham agree to a review after failings including unnecessary surgeries.
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
📅 24.09.2026 👁️ 2
Daniel Thomas arrested over video of dinghy slashing
Police had been looking into footage appearing to show the man, also known as Danny Tommo, slashing at a boat in the English Channel with a knife.
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 1
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
📅 24.09.2026 👁️ 1
Fjöldi vopnaútkalla sjöfaldaðist en mönnun stendur í stað
Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008....