Kærasta Simma Vill selur parhús

Hafrún Hafliðadóttir, ritstjóri Mosfellings og kærasta Sigmars Vilhjálmssonar athafnamanns, hefur sett parhúsið sitt í Mosfellsbæ á sölu. Parhúsið stendur við Furubyggð 34 og er ásett verð 124,9 milljónir króna. Húsið var byggt árið 1992 og er staðsett í grónu og friðsælu hverfi í Mosfellsbæ með leikskóli í næsta nágrenni.
Húsið er fimm herbergja parhús með innbyggðum bílskúr. Forstofa, gestasnyrting, eldhús, borðstofa, stofa, fjögur svefnherbergi, hol, baðherbergi, risloft og bílskúr. Hellulagt bílaplan með snjóbræðslu, bakgarður með hellulagðri verönd og afgirt timburverönd í suðvesturátt.
Eignin er skráð 164,7 m2, þar af er íbúðin 138,0 m2 og bílskúrinn 26,7 m2. Þá er risloft sem ekki er inni í fermetratölu hússins.
Eignin skiptist í forstofu með flísum á gólfi og fataskáp. Gestasnyrting er inn af forstofu með flísum á gólfi, salerni og lítilli innréttingu. Eldhúsið er með L-laga innréttingu. Í innréttingu eru tveir ofnar, helluborð, gashelluborð, vaskur og innbyggður ísskápur og gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingunni.
Borðstofan er í opnu rými með eldhúsi og úr borðstofu er innangengt í bílskúr. Einnig er útgengt út í bakgarð í norðausturátt.
Stofa og sjónvarpshol eru í björtu rými með parketi á gólfi og úr stofu er gengið út á afgirta timburverönd í suðvesturátt.
Á efri hæðinni er hol með parketi á gólfi. Úr holi er gengið út á stórar svalir sem eru yfir bílskúr. Hjónaherbergið er með fataskápum og parketi á gólfi og hin tvö minni eru með parketi á gólfi. Baðherbergið sem var endurnýjað árið 2023 er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari og sturtu með innbyggðum tækjum.
Af efri hæðinni er stigi upp í rúmgott rými með teppi á gólfi og gluggum. Búið er að skipta rýminu upp í hol og í fjórða svefnherbergið. Rýmin eru ekki inni í fermetratölu eignarinnar.