K-listinn og Framsókn skrifuðu í dag undir málefnasamning í Dalvíkurbyggð til næstu fjögurra ára. Viðræður höfðu staðið flokkanna á milli frá því fljótlega eftir kosningar.
K-listinn var aðeins þremur atkvæðum frá hreinum meirihluta og hafði starfað með Sjálfstæðisflokknum í meirihluta undanfarin fjögur ár. Nú er honum hins vegar skipt út fyrir Framsókn.
Einnig var tilkynnt að Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir verður áfram sveitarstjóri en hún tók til starfa árið 2022.