Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðsmaður í fótbolta, leikur sinn síðasta leik fyrir norska liðið Brann í kvöld.
Kantmaðurinn hefur verið að láni hjá Brann frá Herthu Berlín undanfarna mánuði og er lánssamningurinn á enda og verður ekki framlengdur.
Jón Dagur hefur leikið sautján leiki með Brann, skorað þrjú mörk og lagt upp þrjú mörk til viðbótar.
Kristall Máni Ingason, Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson leika með liðinu.