John Ternus tók í dag við sem forstjóri tæknifyrirtækisins Apple. Hann tekur við af Tim Cook sem leitt hefur fyrirtækið síðan árið 2011. Cook er þó ekki á förum frá fyrirtækinu þar sem hann tekur við sem stjórnarformaður þess.
Ternus hefur starfað fyrir Apple í um 25 ár og vann þá aðallega í vöruþróun. Hann kom meðal annars að þróun Apple úrsins og Airpods heyrnartólanna.
Ternus tekur við fyrirtækinu á góðum stað en það óx gríðarlega á þeim árum sem Cook var við stjórnvölinn. Fyrirtækið er í dag metið á um 4600 milljarða dollara og er annað verðmætasta fyrirtæki heimsins á eftir Nvidia.
Það mun þó reyna á Ternus að halda virði fyrirtækisins á góðum stað þar sem miklar breytingar eru í tækniheiminum með tilkomu gervigreindarinnar. Fyrirtækið hefur kynnt uppfærslur á gervigreindaraðstoðarmanni sínum Siri en hefur ekki verið leiðandi í gervigreindarkapphlaupinu hingað til.
Tilkynnt var að Ternus myndi taka við fyrr á þessu ári og kynnir hann nýja kynslóð Iphone-snjallsíma í næstu viku. Ternus hefur aðallega starfað við vöruþróun hjá fyrirtækinu og er búist við því að hann muni stækka vöruúrval fyrirtækisins á næstu árum.