Jarðskjálfti að stærðinni 6,9 varð í norður Chile í gær. Skjálftinn átti upptök sín á um 100 km dýpi í Atacama-eyðimörkinni um 31 km frá borginni Calama. Ekki hefur verið tilkynnt um manntjón eða eyðileggingu á innviðum.
Chile liggur á mörkum þriggja flekaskila svo jarðskjálftar eru algengir í landinu. Stærsti skjálfti sem sögur fara af varð í Validiva 1960 en sá var 9,5 að stærð. Árið 2010 varð skjálfti að stærðinni 8,8 út fyrir strönd Chile. Skjálftinn olli mikilli flóðbylgju og yfir 520 fórust.