Í myndbandi sem samtökin Já til að sjá birtu á samfélagsmiðlum sínum í dag var því ranglega haldið fram að mjólkurlítrinn hér á landi kosti 380 krónur. Hið rétta er að mjólkurlítrinn í verslunum Bónus kostar 234 krónur.
Í myndbandinu, sem nú hefur verið eytt, reyndi Margrét Rós Sigurjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, að sýna fram á hve mikið meira af mjólk væri hægt að kaupa fyrir lágmarkslaun í Svíþjóð samanborið við á Íslandi.
Margrét sagði lágmarkslaun á dag vera um 15.000 krónur eftir skatt á Íslandi og 11.500 krónur í Svíþjóð. Í Svíþjóð sagði hún mjólkurlítrann kosta 183 krónur, samanborið við 380 krónur á Íslandi.
Skeikaði um 62,4%
Samkvæmt útreikningum Margrétar væri því hægt að kaupa 39 mjólkurfernur fyrir íslensku lágmarkslaunin en 63 í Svíþjóð.
Þessir útreikningar eru þó rangir. Ekki nóg með að Margrét hafi farið með rangt mál þegar kemur að mjólkurverði á Íslandi þá kostar mjólkurlítrinn heldur ekki 183 krónur í Svíþjóð, í verslunum Lidl í Svíþjóð, sem almennt er með lægsta verðið á nauðsynjavörum, kostar mjólkurlítrinn 147 krónur.
Með íslensku lágmarkslaunin mætti því kaupa 64 lítra af mjólk en með þau sænsku mætti kaupa 78 lítra af mjólk. Samkvæmt útreikningum Margrétar mætti kaupa 62 prósent meiri mjólk í Svíþjóð en á Íslandi en hið rétta er að í Svíþjóð mætti kaupa 22 prósent meiri mjólk.
Í myndbandinu hélt Margrét því fram að mjólkurlítrinn á Íslandi kostaði 62,4% meira en hann í raun gerir.