Sorphirðumenn á Ítalíu fundu lottómiða að verðmæti einnar milljónar evra í ruslabíl eftir að örvæntingarfullur vinningshafi lýsti eftir honum. Vinningsupphæðin nemur einni milljón evra eða um 140 milljónum íslenskra króna.
Vinningsmiðinn fannst í heilu lagi eftir að starfsmenn sorphirðufyrirtækis í Puglia-héraði fóru í gegnum ruslið sem safnað hafði verið í bílinn.
Roberto Nicola Toscano, framkvæmdastjóri sorphirðufyrirtækisins SANB á Suður-Ítalíu, segir það kraftaverki líkast að miðinn hafi fundist óskaddaður.
Leituðu í sorpi í hálfan sólarhring
Að sögn Toscano fór kona ein, sem ekki hefur verið nafngreind, í nærliggjandi verslun á sunnudag til að láta yfirfara miðann sinn. Þá sýndi vélin að ekki var hægt að greiða út vinninginn þar vegna þess að litlar verslanir geta aðeins greitt út smærri vinninga.
Konan áttaði sig ekki á því að hún hefði unnið stóra vinninginn þangað til hún kom heim en hún hafði þá skilið miðann eftir í versluninni. Þegar hún snéri þangað aftur hafði miðanum verið hent og ruslið sótt og því hafði konan samband við Toscano.
„Við reyndum að rekja ferðir miðans en gerðum okkur litlar vonir um að finna hann þar sem ruslið var þegar komið í sorpbíl,“ sagði Toscano.
Eftir einhverja leit tókst þó að hafa uppi á bílnum sem sótti miðann og taka hann tímabundið úr umferð. Við tók umfangsmikil leit í sorpbílnum sem stóð yfir í rúmar tólf klukkustundir þar til miðinn fannst.
Toscano segir konuna hafa grátið úr gleði við það að fá þær gleðifréttir að miðinn hefði fundist enda áskotnaðist henni þar með ein milljón evra.