Yfir þrjátíu voru drepnir í loftárásum Ísraela á Suður-Líbanon í gær og minnst fjörutíu særðust, að sögn líbanska heilbrigðisráðuneytisins. Ríkisfréttastöðin NNA segir tvö börn og þrjár konur meðal hinna látnu.
Reuters hefur eftir líbönskum öryggissveitum að Ísraelsher hefði gert yfir 120 loftárásir á einum degi, bæði í landinu sunnan- og austanverðu. Það eru þyngstu atlögur Ísraela um nokkurra vikna skeið.
Hezbollah-hreyfingin segist hafa gert árásir á ísraelska hermenn og skriðdrekasveitir í Suður-Líbanon. Ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú tilkynnti í gær að hert hefði verið á hernaðaraðgerðum í Suður-Líbanon.
Fjölmennt herlið hefði sölsað undir sig víðfeðm landsvæði með það markmið að vernda byggðir í Líbanon norðanverðu. Viðkvæmt vopnahlé hefur staðið milli Ísraels og Líbanon frá í apríl og á þeim tíma hafa yfir 600 Líbanir verið drepnir í atlögum Ísraelshers.
Að minnsta kosti þrír Palestínumenn voru drepnir og nokkrir til viðbótar særðust þegar Ísraelsher gerði stórfellda loftárás á íbúðarhús á fjölmennu svæði á Gaza. Þetta hefur BBC eftir hvort tveggja sjónarvottum og læknum.
Skrifstofa Netanjahús segir atlögunni hafa verið beint að Hamas-leiðtoganum Mohammed Odeh. Hvorki Ísraelsher né Hamas hafa tjáð sig um hvort Odeh hafi týnt lífi. Yfir þrjátíu voru drepnir í loftárásum Ísraela á Suður-Líbanon í gær og minnst fjörutíu særðust.