Íslendingur knésetti easyJet

Íslendingur knésetti easyJet

Íslendingur knésetti easyJet

Íslendingur knésetti easyJet

757754945_10175260095885381_3690175411297338871_n
Mynd: Facebook/Aðalsteinn

Flugfélagið easyJet hefur viðurkennt mistök, endurgreitt aukagjald og fjarlægt stálplötur úr farangursgrindum á Gatwick-flugvelli í Lundúnum. Þetta er niðurstaðan eftir margra mánaða baráttu Aðalsteins Svan Hjelm sem neitaði að sætta sig við ósanngjarna innheimtu.

Málið hófst í maí síðastliðnum þegar Aðalsteinn var á leið í frí til Grikklands gegnum Gatwick-flugvöll. Við hliðið var hann stöðvaður af starfsfólki easyJet og beðin um að setja handfarangurstöskur sínar í málmgrind sem notuð er til að staðfesta lögmæt mál farangurs.

Aðalsteinn var með Samsonite-tösku sem er sérstaklega merkt sem „easyJet Verified“ og hefur nýst í fjölda ferða um allan heim án athugasemda. Í þetta skiptið passaði taskan hins vegar ekki í grindina. Þrátt fyrir mótmæli farþega var svarið einfalt: „Ef hún passar ekki, þá borgarðu.“ Lyktaði málinu svo að parið þurfti að greiða um 16.000 íslenskar krónur (tæplega 100 bresk pund) í aukagjald fyrir tvær töskur.

757346672_10175260095945381_6173633850627857925_n
757969599_10175260095920381_7827053956940348732_n
Mynd: Facebook/Aðalsteinn

Kerfið brást neytendum

Aðalsteinn tók myndir af atvikinu og hóf þegar daginn eftir formlegt kæruferli. Eftir að easyJet og Gatwick-flugvöllur höfnuðu kröfum hans, var málinu skotið til Aviation ADR, sem á að heita óháður úrskurðaraðili í flugmálum í Bretlandi.

Á öllum stigum málsins var kröfu Aðalsteins hafnað og á engum tímapunkti var gripið til þess úrræðis að mæla umrædda málmgrind með óháðum hætti. Aviation ADR kvað upp lokaúrskurð þar sem tekið var undir orð easyJet og málinu lokað.

Augljós fjárhagslegur hvati

Aðalsteinn hóf þá eigin rannsókn á málinu og komst að því að fjölmargir farþegar höfðu lýst nákvæmlega sömu reynslu á vettvangi bresku neytendasamtakanna Which?.

Í ljós kom að easyJet hefur útvistað þessari hliðarþjónustu til verktaka. Samkvæmt breskum miðlum fær verktakinn hlutdeild í hverri innheimtu, sem nemur um 2,50 pundum af hverjum 48 pundum sem innheimt eru. Slíkt fyrirkomulag skapar augljósan fjárhagslegan hvata fyrir starfsfólk til að finna sem flestar töskur sem „passa ekki“.

Aukagjöld vegna handfarangurs og annarrar hliðarþjónustu eru gríðarlega mikilvæg tekjulind fyrir flugfélagið, en á síðasta fjárhagsári námu þessar tekjur um 2,46 milljörðum breskra punda, sem nemur um 30% af heildartekjum easyJet.

Fullnaðarsigur og viðurkenning á mistökum

Í stað þess að gefast upp eftir neikvæðan úrskurð Aviation ADR, ákvað Aðalsteinn að senda lokaerindi beint á persónuleg netföng æðstu stjórnenda easyJet þar sem hann reifaði málið og sönnunargögnin.

Aðeins nokkrum klukkustundum síðar barst svar frá flugfélaginu þar sem liðsinni hans var þakkað. Í ljós kom að easyJet hafði hrundið af stað innanhúsrannsókn sem leiddi til þess að ákveðið var að fjarlægja allar stálplötur úr farangursgrindunum á Gatwick-flugvelli. Flugfélagið baðst afsökunar og lofaði fullri endurgreiðslu.

Málinu er þó ekki alveg lokið þar sem Aðalsteinn hefur þegar sent fyrirspurn til baka um hvað standi til að gera varðandi þá þúsundir annarra farþega sem kunna að hafa greitt ólögmæt gjöld á meðan stálplöturnar voru í notkun. Þá verða gögn málsins send áfram til breskra neytendasamtaka og stærri fjölmiðla ytra til að tryggja að málið fái verðskuldaða athygli.

Aðalsteinn lýsir raunum sínum í opinberri færslu sem lesa má í heild sinni hér:

„Smá FYI næst þegar þið fljúgið með easyJet eða öðru flugfélagi og svikamyllu sem virðist fá þar að dafna og gott er fyrir ykkur að hafa í huga.

Við Inga fórum í dásamlega ferð til fjölskyldunnar okkar í Grikklandi í maí síðastliðnum. Alltaf jafn yndislegt að koma þangað. Við easyJet hliðið í Gatwick lentum við hins vegar í heldur leiðinlegri reynslu þegar við vorum stöðvuð og beðin um að setja handfarangurstöskurnar okkar í málmgrind sem á að staðfesta hvort þær uppfylli 45 cm regluna hjá easyJet. Ekkert óeðlilegt við það í sjálfu sér.

Ég var með Samsonite handfarangurstösku sem er merkt „easyJet Verified“ og hef ferðast með hana vítt og breitt um heiminn án vandræða. Einhverra hluta vegna passaði taskan allt í einu ekki í grindina. Ég benti starfsfólkinu kurteislega á að eitthvað hlyti að vera athugavert þar sem ég hefði aldrei áður lent í þessu með sömu tösku. Svarið var frekar einfalt:

„If it does not fit, you pay!“

Þrátt fyrir mótmæli og tuð af minni hálfu og fleiri farþega sem urðu vitni að þessu, endaði málið með því að við þurftum að greiða um 16.000 krónur í aukagjald fyrir tvær handfarangurstöskur.

Mér fannst eitthvað ekki stemma þarna. Ég hef ferðast með þessa tösku í fjölda ferða án athugasemda og fannst framkoma starfsfólksins óvenju ákveðin. Ég tók því myndir af öllu og hóf daginn eftir formlegt kæruferli hjá easyJet.

Þegar það skilaði engu sneri ég mér að Gatwick-flugvelli sem gat eða vildi ekkert aðhafast. Að lokum fór málið til Aviation ADR, sem á að heita óháður úrskurðaraðili í svona málum. Á öllum stigum var kröfunni minni hafnað um sanngjarna meðferð og á engum tímapunkti var gripið til þess einfalda úrræðis að mæla málmgrindina með óháðum hætti. Mér fannst það vægast sagt undarlegt og var ekki tilbúinn að kyngja þessu og fór því að skoða málið betur. Þar kemur í ljós að fjölmargir hafa lýst nákvæmlega sömu reynslu. Hér eru nokkrar greinar um málið:

https://www.which.co.uk/.../what-to-do-if-an-airline...

https://www.which.co.uk/.../why-easyjet-passengers-should...

Samkvæmt þessum heimildum hefur easyJet útvistað þessari þjónustu til verktaka. Þar kemur jafnframt fram að farþegar greiði 48 GBP (um 8.100 kr.) fyrir hverja tösku sem er talin of stór. Af þeirri upphæð fær verktakinn samkvæmt sömu heimildum 2,50 GBP (um 420 kr.) fyrir hverja innheimtu. Ef þessar upplýsingar eru réttar skapast augljós fjárhagslegur hvati til að finna sem flestar töskur sem „passa ekki“.

Til að setja þetta í samhengi skulum við taka einfalt dæmi. EasyJet flýgur fjórum sinnum á dag frá Gatwick til Aþenu. Ef við gefum okkur að að meðaltali 30 farþegar í hverju flugi greiði 8.100 kr. í aukagjald vegna handfarangurs, gætu tekjurnar numið um 972.000 krónum á dag, eða rúmlega 355 milljónum króna á ári – frá þessari einu flugleið. Af þeirri upphæð myndu um 18,4 milljónir króna renna til verktakans samkvæmt framangreindum upplýsingum.

Til samanburðar rekur easyJet um 1.600 flug á dag um Evrópu. Ef sambærileg framkvæmd á sér stað á fleiri flugvöllum og hliðum er ljóst að um mjög háar fjárhæðir gæti verið að ræða. Þessir útreikningar eru að sjálfsögðu aðeins dæmi sem sýna hversu miklar tekjur geta orðið til ef slíkar innheimtur eru algengar.

Það sem gerir þetta enn athyglisverðara er að samkvæmt ársreikningi easyJet námu tekjur félagsins af aukagjöldum – svo sem handfarangri, sætavali, forgangsþjónustu og annarri viðbótarþjónustu – um 2,46 milljörðum breskra punda á síðasta fjárhagsári, eða um 413 milljörðum íslenskra króna. Það jafngildir um 30% af tekjum flugrekstrar félagsins. Það er því ljóst að aukagjöld eru ekki smávægilegur hluti af rekstrinum heldur afar mikilvæg tekjulind sem kemur meðal annars til vegna svona vinnubragða.

Í morgun fékk ég semsagt lokaúrskurð frá Aviation ADR. Þau sjá enga ástæðu til að taka málið til frekari skoðunar og treysta einfaldlega á orð easyJet um að allt sé í þarna í himnalagi.

Næsta skref væri því að fara með málið fyrir dómstóla og jafnvel í fjölmiðla. Ég nenni hreinlega ekki að eyða meiri tíma í þetta en langaði að deila þessari reynslu okkur öllum víti til varnaðar.

Þannig að, kæru vinir, næst þegar þið ferðist með handfarangur, takið með ykkur málband. Eftir þessa reynslu get maður því miður ekki lengur treyst easyJet aftur né jafnvel öðrum flugfélögum - að tekið sé á svona málum af sanngirni og heiðarleika. Kannski er það bara svona sem þessi lággjaldaflugfélög ná að halda verðinu á flugmiðanum niðri og ná svo inn aurunum með klækjabrögðum líkt og við Inga okkar lentum hér því miður í.

Rétt til að bæta því við þá þurfa sem dæmi öll tæki sem við framleiðum og seljum hjá Marel og notuð eru til viðskipta eftir vigt, að vera löggilt og reglulega vottuð af hinu opinbera til að tryggja sanngjarna verðlagningu. Sambærilegar kröfur virðast hins vegar ekki gilda um mælibúnað flugfélaga sem þýðir í raun að flugfélög geta hagað sér þarna sem þeim sýnist og halað inn milljónunum á dag án nokkurra afskipta frá eftirlitsstofnunum. Það finnst mér, að minnsta kosti, umhugsunarefni.

Ást og friður!

UPPFÆRT: Fullnaðarsigur!! Sjáið í kommentinu mínu hér fyrir neðan

UPPFÆRT: Fullnaðarsigur!!

Vill svo ótrúlega til að eftir að dómurinn hjá Aviation ADR var kveðinn upp í morgun og ég gerði í kjölfarið eina lokatilraun með því að senda tölvupóst á nokkra af helstu stjórnendum easyJet, með netföng sem ég hafði komist yfir, var haft samband við mig núna seinnipartinn.

Þar viðurkennir easyJet að eftir rannsókn sem flugfélagið segist hafa hrint af stað – væntanlega í kjölfar kærunnar frá mér – hafi verið ákveðið að fjarlægja allar stálplötur úr umræddum farangursgrindum á Gatwick. Ég mun fá gjaldið að fullu endurgreitt og beðist hefur verið afsökunar á því sem gerðist.

Núna í kjölfarið sendi ég svo easyJet þakkarpóst fyrir að hafa loksins brugðist við og leiðrétt það sem ég tel augljós mistök, eftir marga mánuði af samskiptum og kæruferlum af ýmsum toga. Ég sendi jafnframt allar nauðsynlegar bankaupplýsingar vegna endurgreiðslunnar.

Um leið lét ég þá spurningu fylgja með hvað stæði til að gera varðandi alla hina farþegana sem kunna að hafa greitt sambærileg gjöld á meðan þessar stálplötur voru enn í notkun undanfarna mánuði. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig easyJet bregst við þeirri spurningu, nú þegar flugfélagið hefur viðurkennt mistök og gripið til úrbóta.

Þetta er því klár sigur fyrir mig. Málinu er þó ekki lokið að mínu mati. Ég mun senda öll gögn áfram til neytendasamtaka í Bretlandi og nokkurra vel valinna fjölmiðla þar í landi, enda tel ég mikilvægt að upplýsa hvort fleiri farþegar hafi orðið fyrir sambærilegri meðferð. Þar verður eitthvað fjaðrafokið skal ég segja ykkur ef ég þekki Englendingana rétt!

Réttlætið sigrar semsagt alltaf að lokum, kæru vinir!!

Hér er umrætt svar frá easyJet, sem er í raun kostulegt í ljósi alls þess sem á undan er gengið.“

#easyjet #knésetti #íslendingur


Upprunaleg slóð:
https://mannlif.is/greinar/islendingur-knesetti-easyjet/

📰 Aðrar fréttir

Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
📅 26.10.2026 👁️ 2
Vill að ríkið semji um fast verð á innanlandsflugmiðum
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði og sérfræðingur í byggðaþróun, segir aðalvandamálið við Loftbrúna ekki hvort ríkið niðurgreiði flugmiða um...
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
📅 26.10.2026 👁️ 2
Chris Mason: The Budget is imminent as tricky things pile up for Burnham
From Brexit debates to North Sea oil, there is plenty getting the cabinet, the Labour Party and the country talking.
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
📅 26.10.2026 👁️ 3
Lét lítinn pug hund dangla af svölunum á fimmtu hæð - „Við munum ekki láta svona hegðun líðast“
Lögreglan í El Salvador hefur handtekið fyrrverandi knattspyrnumann fyrir gróft dýraníð. Maðurinn lét lítinn hund dangla fram af svölum og tók það upp...
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum - Vísir
Luiz Inácio Lula da Silva Brasilíuforseti tryggði sér fjórða kjörtímabilið í seinni umferð kosninganna í gær. Hann hlaut 51,79 prósent gildra atkvæða ...
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
📅 26.10.2026 👁️ 2
Harry Kane: Bayern Munich and England striker wins Ballon d'Or after record season
Harry Kane becomes the first English player to win the Ballon d'Or since Michael Owen in 2001 after being crowned the world's best player at a ceremon...
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
📅 26.10.2026 👁️ 3
Healey vows cheaper marmalade and gherkins in pre-Budget package
The chancellor will axe tariffs on some staples as part of plans to give households "breathing space".
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
📅 26.10.2026 👁️ 2
Busted's James Bourne says 'hero' brother saved his life with kidney donation
The guitarist says doctors had given him "a few years left to live", but is now recovering well.
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
📅 26.10.2026 👁️ 3
„Kannski hefur Evrópa einfaldlega verið að tala vitlaust tungumál við Trump“
Sigvaldi Einarsson, frumkvöðull og áhugamaður um alþjóðamál, veltir því fyrir sér í pólitískri ádeilu hvort staðan í heiminum væri öðruvísi hefði Evró...
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kominn yfir fertugt? Þetta eru 10 mikilvægustu æfingarnar fyrir restina af lífi þínu
Hvaða æfingar myndirðu velja ef þú mættir aðeins gera tíu það sem eftir væri ævinnar? Jeff Cavaliere, maðurinn á bak við ATHLEAN-X, hefur tekið saman ...
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
📅 26.10.2026 👁️ 3
40 ár frá vígslu Hallgrímskirkju
Hallgrímskirkja er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar og var formlega vígð þann 26. október 1986. Hátíðardagskrá hefur farið fram undanfarna viku í...
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
📅 26.10.2026 👁️ 3
Óráðlegt að hætta við nýtt einkunnakerfi þrátt fyrir óvissu
„Ég held að það væri óráð að reyna að hætta við,“ sagði Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla og varaformaður Skólastjórafélags Íslands, u...
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hrósar venjulega ekki stjórnmálamönnum en gerir undantekningu með Lula
Kristinn Hrafnsson fjölmiðlamaður og upplýsingafulltrúi Wikileaks segist venjulega fara varlega í að hrósa stjórnmálamönnum en í ljósi góðrar reynslu ...
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Beijing til Keflavíkur í einni ferð í fyrsta sinn
Fyrsta beina flugið á milli Kína og Keflavíkur, með viðkomu í Kaupmannahöfn, var í dag. Sendiherra Kína segir þetta mikla breytingu í samskiptum ríkja...
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Kosningar í Ísrael: Þjóð á kross­götum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úr­slitum - Vísir
Kosningarnar snúast að verulegu leyti um Benjamín Netanjahú forsætisráðherra sjálfan. Fréttaskýrendur í Ísrael og annars staðar líta margir svo á að á...
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
📅 26.10.2026 👁️ 4
Blendnar tilfinningar fyrir leitina að Lúðvík
Bróðir manns sem féll niður í sprungu sem myndaðist í Grindavík segist þakklátur fyrir að ákveðið hafi verið að ráðast í leit að líki bróður hans. Lei...
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Sama jarmið í sauð­fé og ferða­mönnum - Vísir
Þetta heyrðum við á bænum Gerði þegar við ræddum við þau Björn Borgþór Þorbergsson og Þóreyju Bjarnadóttur fyrir þáttinn Um land allt. Þau eru í hópi ...
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
📅 26.10.2026 👁️ 4
Minni byggðalög líði fyrir aukna miðstýringu lögreglu
Áform dómsmálaráðherra um að sameina lögregluembætti í þrjú mæta harðri mótstöðu á landsbyggðinni. Dómsmálaráðherra segir lítil embætti ekki ná utan u...
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
📅 26.10.2026 👁️ 4
Oscar-winning producer says BBC gave her £400,000 payout after she raised antisemitism concerns
The BBC says it did not uphold any of the allegations of antisemitism but accepted there were "shortcomings" in how it treated Lucie Kon.
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
📅 26.10.2026 👁️ 4
Á ég að segja syni mínum hræðilegan sannleikann um ömmuna sem hann elskaði?
Á að segja sannleikann um erfiða fortíð eða á að hlífa tilfinningum ástvina? Það er hægt að lifa eftir mottóinu um sannleikurinn sé sagna bestur en vi...
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Hvað veistu um… pitsur? - Vísir
Pitsur hafa fyrir löngu fest sig í sessi sem einn vinsælasti skyndibiti heims og njóta mikilla vinsælda á Íslandi, hvort sem hún er borðuð á veitingas...
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 3
Ó­metan­legt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum - Vísir
Brynjar Steinn er fæddur árið 1999 og öðlaðist mikla frægð á samfélagsmiðlinum Snapchat á sínum tíma, þar sem notandanafnið hans var einmitt Binni Gle...
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar sjá eftir bæna­stund með Trump - Vísir
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu ha...
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Meirihluti kjósenda valdi „Serbíu frekar en mafíu“
Kjósendur völdu á milli Serbíu eða mafíu í þingkosningum sem fóru fram í landinu í gær, að sögn kjósanda frá Íslandi. Stúdentahreyfing vann stórsigur ...
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
📅 26.10.2026 👁️ 4
Líkamshlutar manns fundust í Rínarfljóti
Þrír menn fundu poka sem innihéldu fótlegg af manni þegar þeir gengu meðfram árbakka Rínarfljóts í Stein, skammt frá Basel í Sviss, í gær.Lögreglan í ...
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum
Segir skerðingu Loftbrúar byggða á röngum forsendum Þóroddur Bjarna­son félags­fræði­pró­fessor segir útgjöld Loft­brú­ar­innar aldrei hafa farið yfir...
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
📅 26.10.2026 👁️ 4
Slá skjaldborg um sveitarstjórann eftir spurningar um meint vanhæfi vegna tengsla við Samherja
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar sammæltist um það á fundi sínum á fimmtudag að lýsa yfir fullu trausti til Katrínar Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjö...
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
📅 26.10.2026 👁️ 4
Biskupar biðjast afsökunar á fundinum með Trump – „Ég finn til mikillar sorgar“
Tveir kaþólskir biskupar hafa beðist afsökunar á fundi sínum með Donald Trump Bandaríkjaforseta. Birt var ljósmynd af þeim að biðja með honum.Breska b...
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn - Vísir
Koenig lést á heimili sínu í Hollywood í gær, segir í umfjöllun Variety.  „Í dag syrgjum við Walter Koenig. Hæfileikar hans, hlýja og ógleymanlegur fl...
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Bilaður bíll í Hvalfjarðargöngum
Hvalfjarðargöng voru lokuð vegna bilaðs bíls í skamma stund á sjöunda tímanum samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Þau hafa verið opnuð á ný.
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Eftirspurn eftir meiri raforku aðallega frá gagnaverum
Heimili á Íslandi nota um 5% af allri raforku sem hér er framleidd og stóriðjan tæplega 80%. Samkvæmt nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins nota gagnaver...
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
📅 26.10.2026 👁️ 4
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum í september
Yfir milljón laxar drápust í sjókvíum á Íslandi í september. Deildarstjóri segir mikinn meirihluta hafa drepist á Reyðarfirði, vegna marglytta sem her...
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ - Vísir
Breytingar á svokallaðri Loftbrú, um niðurgreiðslu flugfargjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni, eiga að taka gildi 1. janúar. Ingibjörg segir Loftbrúna ...
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
📅 26.10.2026 👁️ 5
Áform ríkisstjórnarinnar lenda verst á þeim sem eiga að njóta ávinningsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki e...
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
📅 26.10.2026 👁️ 4
Vilja að tekið sé meira tillit til hávaða frá Keflavíkurflugvelli
Minnihluti skipulagsráðs Reykjanesbæjar fer fram á að í nýju aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar verði tekið mið af hljóðvist og samfélagslegum áhrif f...
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lög­regla kölluð til vegna drengjana í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 4
Lög­regla kölluð til vegna drengjanna í Goða­fossi - Vísir
Greint var frá því í gær að myndband af tveimur bandarískum strákum stökkva ofan í Skjálfandafljót af kletti við Goðafoss hefði verið birt á samfélags...
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
📅 26.10.2026 👁️ 5
Jón Gnarr segir Viðreisn í krísu – útilokar ekki að hætta stuðningi við ríkisstjórnina
Jón Gnarr þingmaður segir Viðreisn glíma við uppsafnaðan samskiptavanda, skipulagsleysi og pólitískar deilur. Hann hyggst áfram styðja ríkisstjórnina ...
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
📅 26.10.2026 👁️ 5
Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána - Vísir
Maðurinn hefur verið ákærður fyrir gróft brot á vopnalögum auk vörslu fíkniefna og sprengifimra og eldfimra hluta. Málið verður tekið fyrir í Kalmar n...
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
📅 26.10.2026 👁️ 5
Lögregla kölluð til vegna manna sem stukku í hylinn við Goðafoss
Myndband af bandarískum piltum stökkva ofan í Skjálfandafljót við Goðafoss hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlinum Instagram.Skjálfandafljót er ...
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
📅 26.10.2026 👁️ 4
Calima pre-alert declared across the Canary Islands as air quality worsens
A pre-alert for calima has been activated across the Canary Islands after a deterioration in air quality was recorded at monitoring stations in Teneri...
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 4
Mosfellsbær kefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
📅 26.10.2026 👁️ 5
Mosfellsbær krefst þess að iClean afhendi Eflingu gögn
Mosfellsbær hefur skorað formlega á ræstingafyrirtækið iClean að afhenda verkalýðsfélaginu Eflingu gögn sem snúa meðal annars að verklýsingum, tímaútr...
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
📅 26.10.2026 👁️ 4
Machado reiðbúin að ræða við sitjandi forseta
Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela og handhafi friðarverðlauna Nóbels, er reiðbúin til að setjast niður með sitjandi fors...
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
📅 26.10.2026 👁️ 4
Tóku mann af lífi fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum 14 ára gamall – Játning knúin fram með pyndingum
Yfirvöld í Sádi Arabíu hafa tekið 29 ára mann að nafni Hassan Zaki al-Faraj af lífi. Hassan tók þátt í mótmælum þegar hann var 14 ára gamall en var sí...
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál“
„Þetta fæ ég fyrir að tjá mér um samfélagsmál,“ segir Jasmina Vajzovic um færslu Sigfúsar Aðalsteinssonar í hópnum Ísland – Þvert á flokka þar sem han...
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
📅 26.10.2026 👁️ 4
Planning a quiet island travel film with Seedance 3.0
A folded map rests on a terrace table as the morning light reaches its edge. Beyond the railing, the sea is still a soft strip of colour. For a travel...
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
📅 26.10.2026 👁️ 4
„Mestu fjárframlög til Loftbrúar nokkru sinni“
Eyjólfur Ármannsson mun leggja fram breytingu á fyrirhugaðri breytingu á Loftbrú. Í frumvarpi til fjárlaga næsta árs var gert ráð fyrir 600 milljónum ...
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
📅 26.10.2026 👁️ 4
Israelis and Americans are both voting - with global consequences
The next fortnight sees two elections on different continents. The outcomes will shape geopolitics and the global economy, writes James Landale
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
📅 26.10.2026 👁️ 4
Alma bað Runólf að sinna starfi forstjóra áfram
Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans hefur fallist á beiðni Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að sinna starfi forstjóra áfram. Fimm ára skipunart...