Íslendingar hafa sópað að sér verðlaunum á mótinu sem fer nú fram á Írlandi en Ísland er í sjöunda sæti af sextíu yfir fjölda verðlauna en um sé að ræða sögulegan árangur að sögn Helgu Ástu Ólafsdóttur, skólastjóra Danskompanísins.
Árangurinn stafi af því á Íslandi séu frábærir þjálfarar, mikið af góðu starfi sé unnið og „æðisleg dansmenning“ hérlendis skemmi ekki fyrir. Danskompaníið í Reykjanesbæ sé til að mynda búið að hreppa níu heimsmeistaratitla, þrjú silfur og fimm brons á mótinu.
Valin lið fái síðan að keppa í úrslitakeppni, „Grand Finals“, en þar komi stigahæstu atriði keppninnar fram og keppist um að hreppa „bestur af þeim bestu“ (e. best of the best) titil. Keppnin fyrir yngri keppendur hafi klárast 13. júlí en Danskompaní hafi unnið tvo svoleiðis titla þar.