Íslendingar greiða að meðaltali 55% meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins. Þetta segir í greiningu Samkeppniseftirlitsins sem var birt í svokölluðu umræðuskjali í dag.
Skjalið er liður í víðtækari athugun eftirlitsins á íslenskum dagvörumarkaði.
Aðeins í Sviss er matvara dýrari en á Íslandi eða 58% yfir meðaltali ESB-landa. Í Noregi er matvöruverð 32% yfir meðaltali. Í Svíþjóð og í Finnlandi er verðið aftur á móti aðeins 6% yfir meðaltali.
Mjólkurvara 90% dýrari
Í umræðuskjalinu er gerð nánari grein fyrir vöruverði á Íslandi og samanburði við önnur Evrópulönd. Mestar hækkanir á dagvöru urðu árið 2020, samanborið við nágrannalöndin. Matvöruverð hér á landi hefur hækkað um 46%, samanborið við 37% verðhækkun í ESB-löndunum.
Af einstökum flokkum matvöru eru mjólkurvörur hér á landi dýrastar í Evrópu, eða rúmlega 90% yfir meðaltali ESB-landa. Næstar koma kjötvörur, en þær eru um 75% yfir meðaltalinu. Verð á kjöti hefur hækkað mest af öllum vöruflokkum á Íslandi frá árinu 2020, eða um 67%. Í Noregi hefur verð á mjólkurvörum hækkað tæplega helmingi minna á sama tímabili og verð á kjöti um þriðjungi minna.
Hátt matvöruverð
Samkeppniseftirlitið aflar nú gagna til að kanna álagningu dagvöruverslana og birgja og koma auga á samkeppnishindranir sem hafa áhrif á matvöruverð.
Eftirlitið kallar eftir sjónarmiðum um efni umræðuskjalsins og ábendingum um samkeppnishindranir fyrir 30. júní. Stór hluti heildarútgjalda íslenskra heimila fer í matarinnkaup og hátt matvöruverð er mikið áhyggjuefni samkvæmt eftirlitinu.