Um fátt hefur verið fjallað meira í íslenskum fjölmiðlum í gærkvöldi og dag en töku Landhelgisgæslunnar á Bandero, skipi samtaka sem kennd eru við Paul Watson. Allir áhafnarmeðlimir voru handteknir. Ólíklegt er að farið verið fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra en farið hefur verið fram á að Útlendingastofnun vísi áhöfninni úr landi. Paul Watson er hæstánægður með atburði gærkvöldsins og segir þá gagnast vel til að vekja athygli á hvalveiðum Hvals h.f. um heimsbyggðina.
Íslendingar fá kaldar kveðjur vegna töku Bandero - „Hvað er að ykkur?“