Íslendingaliðið Blomberg-Lippe er þýskur meistari í handbolta kvenna eftir sigur gegn Dortmund, 30:26, í oddaleik í dag.
Elín Rósa Magnúsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Blomberg-Lippe. Andrea Jacobsen átti sömuleiðis góðan leik fyrir liðið og skoraði þrjú mörk.
Þetta er í fyrsta skipti sem Blomberg-Lippe verður þýskur meistari en liðið tapaði fyrir Ludwigsburg í úrslitum í fyrra.