Peningastefnunefnd Seðlabankans tilkynnti 19. ágúst að stýrivextir hækkuðu um 0,25 prósentustig, úr 7,75 prósentum í 8,0 prósent.
Að neðan má sjá breytingarnar á vöxtum bankans.
Húsnæðislán
- Húsnæðislán tengd stýrivöxtum hafa nú þegar tekið breytingum í takt við hækkun stýrivaxta
- Breytilegir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum hækka um 0,25 prósentustig (ný lán ekki veitt)
- Breytilegir vextir fyrstu kaupalána hækka um 0,25 prósentustig (ný lán ekki veitt)
Útlán
- Óverðtryggðir kjörvextir hækka um 0,25 prósentustig
- Óverðtryggðir kjörvextir Ergo, vextir bílalána og bílasamninga hækka um 0,25 prósentustig
- Vextir á yfirdráttarlánum hækka um 0,25 prósentustig
- Vextir á greiðslukortum hækka um 0,25 prósentustig
Innlán
- Vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig
Breytingarnar sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við skilmála lánanna og tilkynningar um vaxtabreytingar. Það sama gildir um breytingar á vöxtum innlána sem falla undir lög um greiðsluþjónustu.