Hjúin kynntust í janúar árið 2022 og hafa því verið par í rúm fjögur ár. Þau búa í raðhúsi í Garðabæ og hafa verið dugleg að ferðast og njóta lífsins saman.
Íris greindi frá barnaláninu á Instagram í dag og skrifar:
„Endalaust þakklæti. Það að fá að bæta við öðrum sólargeisla í fallegu fjölskylduna okkar er svo mikil gjöf, við vitum að Maya Sól á eftir að vera svo góð og blíð stóra systir.“
Íris Freyja er fædd árið 1998 og er hvað þekktust fyrir fyrirsætustörf en hún keppti í Miss Universe Iceland árið 2021. Þar hafnaði hún í öðru sæti og var valin Miss Supranational Iceland. Athafnamaðurinn Egill Fannar er fæddur árið 1993 en hann er annar eigandi Gorilla vöruhúss og fyrirtækisins Wake Up Reykjavík.