Írönsk stjórnvöld beita nýjum aðferðum við að ráðast gegn skipum á Hormússundi. Yfirlýst markmið er að halda olíuverði háu og þrýsta þannig á Bandaríkjaforseta fyrir kosningarnar þar í landi í næsta mánuði.
Reuters hefur eftir tveimur háttsettum írönskum embættismönnum að fyrir 10 dögum hafi nýrri nálgun verið beitt við að hafa uppi á skipum á sundinu, sem stjórnvöld telja að brjóti gegn reglum þeirra um siglingar þar í gegn. Þessi nýja nálgun hafi verið ákveðin á hæsta stigi íranskrar stjórnsýslu.
Annar embættismannanna segir að yfirlýstur tilgangur þeirra sé að þrýsta olíuverði upp og baka þannig Donald Trump Bandaríkjaforseta vandræði.
Reuters segir að gögn yfir skipaumferð um sundið sýni að árásum á flutningaskip hafi fjölgað síðustu daga. Þá virðast Íranar vera að færa út kvíarnar og beina sjónum sínum í auknum mæli út fyrir sundið, út á Ómanflóa. Skip á siglingu úti fyrir Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa orðið fyrir árásum.
Fyrir stríðið fór um fimmtungur allra olíu heimsins um Hormússund.
Bandaríkjamenn ganga til þingkosninga í næsta mánuði, og forsetinn hefur verið nokkuð upptekinn af eldsneytisverði heima fyrir í aðdraganda þeirra. Hann er ekki fyrsti húsbóndinn í Hvíta húsinu sem er mjög í mun að halda verðhækkunum í skefjum fyrir kosningar – það er raunar vel þekkt kosningabragð þar vestra.
Mörgum þykir útspil hans með nýlegum samningi um dísilkaup við Rússa bera vott um þetta. Að með auknu framboði lækki eldsneytisverð, sem kætir kjósendur korter í kosningar. Olíuverð hefur þó ekki hækkað markvert eftir að Íranar fóru að beita nýrri nálgun, en þó er ekki loku fyrir það skotið að það geri það á næstunni.