Íranar hafa ráðist að skotmörkum í Barein, Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum í nótt. Árásirnar eru svar við árásum Bandaríkjamanna fyrr í nótt, þeim þriðju í þessari viku. Árásir Bandaríkjanna beindust að Bandar Abbas, Sirik og öðrum skotmörkum við strandlengju Írans. Ekki hafa borist fregnir af mannfalli.
Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum segja loftvarnakerfi landsins hafa verið virkjuð til að verjast dróna- og flugskeytaárásum Írana.
Sprengingar hafa heyrst í Doha, höfuðborg Katar, í nótt. Her landsins sagði í yfirlýsingu að hann ynni að því að stöðva árásir Írana. Þá ómuðu loftvarnarflautur í Barein.
Í frétt AP segir að það sé óvíst hvaða skotmörk Íranar höfðu í sigtinu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Íranar hafa ekki ráðist á landið síðan í maí.
Seint í gærkvöld tilkynnti íranski byltingarvörðurinn að Hormússundi hefði verið lokað að nýju. Það hefði verið gert eftir að viðvörunarskotum var skotið að flutningaskipi í sundinu. Íranar sökuðu áhöfnina um að sigla eftir siglingaleið sem ekki hefði verið samþykkt af þarlendum yfirvöldum.
Áhöfnin yfirgaf skipið á meðan það stóð í ljósum logum. Vélarrúm þess skemmdist talsvert í árásinni og það gat því ekki haldið för sinni áfram.