„Bændur eru uggandi og áhyggjufullir – og við hjá samtökunum – yfir þessari mögulegu þróun og ólögmætu aðgerðum einhverra ofstækissinna,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna.
Vísar hún þar til innbrotanna í Dalsbú, Reykjabú og svínabú Stjörnugríss fyrr á árinu.
Áhyggjur af því hvaða bú gætu verið næst
Hún segir það nýjan raunveruleika ef bændur eiga yfir höfði sér að brotist sé inn á bú þeirra og vonar að þeir sem standi að baki innbrotunum verði látnir sæta ábyrgð fyrir þau.
Margrét Ágústa bendir á að bú séu jafnframt heimili bænda og væntir þess að gripið verði til nauðsynlegra aðgerða til að tryggja öryggi þeirra og fjölskyldna þeirra til framtíðar litið.
Innbrotin veki upp áhyggjur af því hvaða bú, eða búgrein, gæti orðið fyrir barðinu næst. „Þetta er vissulega nýr raunveruleiki sem við erum að reyna að átta okkur á.“
Ræða ráðstafanir
Margrét vonar að innbrotin verði ekki fleiri. Hún segir þó bændur velta fyrir sér hvort þeir þurfi að grípa til ráðstafana vegna þeirra.
„Það hefur auðvitað alveg verið rætt og hvernig. Er þetta þá nýr raunveruleiki að það þurfi að hafa vaktað og eftirlitskerfi – bæði inni á heimilum fólks og í gripahúsum?“
Samtökin hafa til skoðunar hvað best sé að gera ef innbrotin verða viðvarandi.
„Það er ótækt að bændur og fjölskyldur þeirra geti ekki verið óhult heima hjá sér,“ segir Margrét.