Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

Andri Már Mortensen Birgisson var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í svokölluðu Reykholtsmáli.
Alls voru sex einstaklingar ákærðir í málinu, fimm karlar og ein kona. Þeim var gefið að sök að hafa með mismunandi hætti komið að frelsissviptingu 61 árs manns á heimili í Reykholti í Bláskógabyggð í apríl 2024. Maðurinn var beittur harkalegu ofbeldi í þeim tilgangi að hafa af honum fé.
Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra, og Pétur Már Mortensen, bróðir hans, voru dæmd í þriggja ára fangelsi. Sigurður Gunnar Ásgeirsson, faðir Ingunnar, hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm. Tveir aðrir ákærðu fengu annars vegar eins árs og hins vegar sex mánaða fangelsi.
Þá var ákærðu gert að greiða þolandanum samtals sex milljónir króna í miskabætur.
Þolandinn hafði um árabil leigt húsnæði af Sigurði Gunnari.
Málskostnaður er jafnframt verulegur. Andra Má var meðal annars gert að greiða verjanda sínum 24 milljónir króna.