Viðræður Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í Hveragerði höfðu staðið yfir síðan í síðustu viku og báru árangur í dag þegar að nýr meirihlutasamningur flokkanna var kynntur. Mikill samhljómur var á milli flokkanna strax frá upphafi kosningabaráttunnar, segir í fréttatilkynningu frá nýjum meirihluta. Ingimar Guðmundsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, verður nýr bæjarstjóri í Hveragerði en hann tekur við af Pétri Markan, sem var ráðinn til starfa 2024 - sem ópólitískur bæjarstjóri. Í samtali við fréttastofu sagði Ingimar að hann hefði fundið mikinn stuðning við sig sem bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins í kosningabaráttunni - en flokkurinn fékk fjörutíu og fjögurra prósenta fylgi.
Þetta er töluverð breyting í Hveragerði en O-listinn og Framsókn mynduðu meirihluta á síðasta kjörtímabili, sá meirihluti féll í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí.
Yfirskrift nýs málefnasamnings meirihlutans er: Ábyrgð - Bæjarbragur - Lífsgæði og ætla flokkarnir að leggja sérstaka áherslu á skipulagsmál, meðal annars endurskoðun aðalskipulags bæjarins með aðkomu íbúa og nýjan gervigrasvöll sem hægt er að nota yfir vetrartímann.