Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspirnusambandsisn, hefur boðað háttsett starfsfólk sambandsins til neyðarfundar á morgun.
Mikill styr hefur staðið um Infantino eftir að hann tilkynnti að hann vildi stofna dótturfyrirtæki FIFA sem yrði að hluta í eigu einkaaðila. Evrópska knattspyrnusambandið sendi frá sér yfirlýsingu um að aðildarsambönd þess myndu ekki taka þátt í mótum fyrr en áformin yrðu blásin af. Infantino dró í land en þrátt fyrir það hefur fjöldi aðildarsambanda dregið stuðning sinn við Infantino til baka.
Efni neyðarfundarins á morgun liggur ekki fyrir en sérfræðingur Sky Sports telur næsta víst að Infantino tilkynni afsögn sína.