Í­búar miður sín og fugla­líf nær allt farið - Vísir

Í­búar miður sín og fugla­líf nær allt farið - Vísir

Í­búar miður sín og fugla­líf nær allt farið - Vísir

Heilbrigðiseftirlit Mosfellsbæjar gerði Veitum að stöðva framkvæmdir fyrir helgi á meðan unnið væri að því að stækka svarfþró, sem er stór skurður sem á að hægja á vatninu, á svæðinu til að grípa betur fínan sand sem kemur upp úr holunni og hefur legið á vatninu og gert það gruggugt.

„Þegar þú hægir á vatninu hefur þetta fína efni meiri tíma til að setjast á botninn áður en það fer út í ána,“ segir Silja Ingólfsdóttir upplýsingafulltrúi Veitna og að framkvæmdir hafi verið stöðvaðar í gær í sólarhring á meðan þau unnu að því að stækka svarfþróna. Á meðan hafi mold borist í ána og því hafi hún fengið á sig brúnleitan lit í gær.

„Fínefnið, svarfbor, er bergmulningur sem kemur þegar borinn borar sig niður. Þá er notað vatn til að ná því upp aftur til þess að það stífli ekki heitavatnsæðarnar sem við erum að leita að. Þá berst það upp og fer í gegnum svarfþrær og bergmulningur sest þá á botninn.“

Áin var nokkuð brúnleit í gær. Andrés Skúlason

Skilja áhyggjur íbúa

Hún segir skiljanlegt að það veki áhyggjur íbúa þegar litabreyting verði á ánni. Með vatninu sem komi upp úr holunni berist mjög fínn sandur en að gerðar séu ráðstafanir til að fanga sem mest af grugginu úr vatninu áður en það fari í ána.

„Við tökum þessu mjög alvarlega og erum að vinna með eftirlitsaðilum af því að lífríkið og umhverfið eiga að njóta vafans,“ segir Silja.

Hún segir þetta ekki eiga að hafa áhrif á lífríkið en þau vilji ná fínrykinu og rannsaka áhrifin betur.

„Meðan á borun stendur er fylgst vel með ánni sem tekur við vatninu eftir borun og það er gert bæði á landi og með dróna úr lofti. Lífríki við og í ánni fær að njóta vafans og unnið er í góðri samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun og sveitarfélagið,“ segir Silja og að þau skilji vel áhyggjur fólks og taki þessu mjög alvarlega.

Framkvæmdasvæði Veitna. Hér má sjá hvar vatnið rennur út og svo í ána. Andrés Skúlason

Umfangsmikil leit

Í tilkynningu frá Veitum um boranirnar segir að um sé að ræða umfangsmestu jarðhitaleit í 50 ár og að í átakinu sé stefnt að því að bora 29 holur á komandi árum, þar af 15 holur í ár.

„Eitt af markmiðum Veitna er að draga úr áhrifum starfsemi sinnar á loftslagið og því er borað með rafmagni þar sem því verður komið við, annars verður notast við lífdísel (VLO) sem dregur úr losun um allt að 90% miðað við notkun dísedísilolíutlaður samdráttur losunar sem á að nást í ár með notkun rafmagns og lífdísels til borunar er um 3000 tonn CO2 ígildi, sem samsvarar 16-faldri losun bílaflota Veitna,“ segir í tilkynningunni.

Stærri yfirlitsmynd af framkvæmdsvæðinu. Andrés Skúlason

Friðlýst svæði á tveimur stöðum

Andrés Skúlason, verkefnastjóri hjá Landvernd, segir mikilvægt þegar horft er til mengunarinnar að verklagsreglur hafi verið brotnar hjá Veitum við það að halda leirleðjunni í sérstökum gryfjum á verkstað og að leðjunni hafi svo verið streymt út í árfarveg Varmár sem fari á tveimur stöðum í gegnum friðlýst svæði, við Leirvog og Álafoss.

„Leiruvogur sem Varmá fellur í er friðlýstur vegna fjölbreyttrar fuglafánu en Leiruvogur og Blikastaðakró eru taldar einar allra mikilvægustu búsvæði vaðfugla ýmissa og fleiri fuglategunda á öllu suðvesturhorninu. Heildaráhrifin af þessari gríðarlegu útskolun á leir frá borteigum Veitna geta haft afdrifaríkar afleiðingar á vatnshlot Varmár og nærliggjandi svæða,“ segir Andrés sem hefur fylgst náið með svæðinu síðustu daga og rætt við íbúa.

Hann segir ána hafa verið dökkrauða í gær og það hafi verið rosalegt að horfa á það.

„Þetta er miklu meira en siðferði Veitna, áin rennur í gegnum tvö friðlýst svæði, annað er friðlýst náttúruvætti og hitt er upp við Álafosskvosina. Þar hef ég hitt íbúa sem eru algjörlega miður sín af því að það er allt fuglalíf farið,“ segir hann og að íbúar hafi séð fljótandi dauða unga í ánni.

Áin var gruggug um helgina þegar fínleitur bermulningurinn rann í ána. Andrés Skúlason

Lituð alla leið

Sjálfur hafi hann ekið meðfram ánni í gær og niður í Leirvog og áin hafi verið lituð alla leiðina.

„Ég held ég hafi séð einn fugl alla leiðina, yfirgefinn stokkandarkarl. Þetta er ótrúleg vanvirðing,“ segir hann og gagnrýnir að íbúar hafi verið illa upplýstir um framkvæmdina.

Hann segir Landvernd ekki hafa aðgang að efnainnihaldi en í sambærilegu máli í Krýsuvík hafi verið varað við innihaldi borvatns vegna brennisteins og brennisteinssýru og svona breytingar geti haft áhrif á sýrustig vatnsins. Það eina sem hann geti fullyrt um sé setið sem myndist af fínögnunum sem hafi verið dælt út í vatnið. Það geti haft víðtæk áhrif á botndýralíf því leirin setjist á botninn.

„Það hefur svo aftur áhrif á botndýralíf og fæðuöflun, til dæmis fugla. Ofan á allt saman er botngróður hreinlega að leysast upp út frá þessari drullu,“ segir hann og að fuglafræðingar hafi í samtölum við hann lýst yfir miklum áhyggjum af þessari framkvæmd.

Áin var nokkuð brúnleit í gær. Andrés Skúlason

Vona að þetta dugi

Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins í Mosfellsbæ, tekur undir áhyggjur Landverndar af framkvæmdinni og áhrifum hennar á lífríki Varmár.

„Framkvæmdir voru stöðvaðar og þeir eru að ganga frá þessari svarfþró þannig að það þarf að taka stöðuna núna þegar menn fara aftur af stað með framkvæmdir. Vonandi gengur þetta eftir,“ segir hann.

Er vitað að þetta dugi?

„Það er það sem við vonum, það er ekki alveg gefið að það dugi en það verður að taka stöðuna á því hvað þarf til að stoppa dreifingu setefna í Varmá.“

Það sé verið að stækka svarfþróna. Svarfþró sé tjörn þar sem efni eigi að ná að falla til botns svo það renni hreint vatn þaðan og í ána.

„Sú svarþró sem var fyrir var of lítil og annaði ekki þeirri mengun sem kom úr holunni, nú er verið að stækka þessa svarfþró þannig að það eru komnar tvær,“ segir hann og að þau voni að með því að stækka þrána verði hægt að fella þetta út.

„Annars verður að skoða aðrar aðgerðir.“

Hvað varðar áhyggjur af lífríki við ána segir Hörður efnin sem komi upp náttúruleg og svipi til efna sem komi upp í jökulám.

„Það jafnar sig með tímanum en þetta getur kæft brotngróður og haft áhrif á fuglalíf,“ segir hann og að það verði að koma í ljós hversu langan tíma það taki að jafna sig.

Hörður segir í tengslum við þetta verkefni áhyggjuefni að löggjafinn sé með lagabreytingum að veikja almennt eftirlit. Jarðboranir séu nú, samkvæmt nýjum lögum, ekki lengur leyfisskyldar en þetta verkefni hafi þó fengið útgefið leyfi heilbrigðiseftirlits og verið auglýst í janúar.

„Nú eru jarðboranir ekki leyfisskyldar lengur, bara jarðborinn og við höfum vakið athygli á því að eftirlit sé ekki eins sterkt,“ segir Hörður en í umsögn hans um reglugerðarbreytingu um tilkynningarskylda færanlega starfsemi er fjallað um það til dæmis að í lagabreytingunni hafi orðið ákveðið þjónusturof og að nú þurfi að standa miklu betur að kynningu á reglugerðarbreytingum. Stór veikleiki breytingarinnar felist í því hvernig ábyrgð á eftirliti skiptist.

Framkvæmdirnar eru í Skammadal. Andrés Skúlason

„Setþró, geymsla svarfs og varnir vegna olíu eru forsenda þess að borinn geti starfað án þess að menga. Ef starfsleyfi og eftirlit með bor er hjá Umhverfis- og orkustofnun, en borplan og mengunarvarnarbúnaður lenda að stórum hluta hjá sveitarfélagi eða í framkvæmdaleyfi, er búið að skipta ábyrgð og eftirliti á einni mengunarhættu þar sem heilbrigðiseftirlitin höfðu eftirlit með áður, en eftirlit færist á tvo eftirlitsaðila,“ segir í umsögninni og að borframkvæmdir séu þekktar fyrir að valda mengun séu mengunarvarnir ekki rétt hannaðar.

„Í eldra fyrirkomulagi var starfsleyfi gefið út fyrir tiltekna holu eða holur. Við það mat var hægt að skoða borframkvæmdina sem eina heild, þ.m.t. hvaðan vatn yrði tekið, hvert affallsvatn færi, hvort setþró væri nægileg, hvernig borsvarf yrði meðhöndlað, hvort áhrifamat fyrir vatnshlot lægi fyrir, hvort náttúru- eða vatnsverndarsvæði væru undir og hvort mengunarvarnir væru fullnægjandi. Með nýju fyrirkomulagi er hætta á að hluti þessara þátta verði annaðhvort ekki metinn með sama hætti eða færist til sveitarfélagsins án þess að skýrt sé hvort sveitarfélagið hafi burði, vilja eða lagalega stöðu til að bera þá ábyrgð að fullu,“ segir enn fremur í umsögninni.

Vakta ána áfram

Hörður segir sem dæmi Heilbrigðiseftirlitið hafa gefið út starfsleyfi fyrir borun Veitna en nú séu þau fallin úr gildi og að Umhverfisstofnun eigi að hafa eftirlit með framkvæmdinni. Heilbrigðiseftirlitið hafi svo eftirlit með mengun árinnar.

„Við vöktum ána og vekjum athygli á því að viðkomandi rekstraraðili sé ekki að sinna sinni skyldu. Eftirlit er þá hjá Umhverfisstofnun en við höfum lýst yfir áhyggjum af þessu. Það er alltaf ákveðin hætta í því að eftirlitið veikist þegar það er verið að einfalda regluverkið,“ segir hann.

Hörður segir heilbrigðiseftirlitið í samstarfi við Umhverfisstofnun fylgjast náið með framkvæmdinni og að það muni skoða stöðu árinnar vel í vikunni þegar framkvæmdir fara aftur af stað. Það muni meta hvort svarfþrærnar séu að virka nægilega vel.

„Það vilja allir að þetta gangi upp, og örugglega Veitur mest, enda eru þau ábyrgðaraðilarnir og eiga að vera á tánum með þetta,“ segir hann og að það komi, sem dæmi, skýrt fram í starfsleyfinu sem þau gáfu upprunalega út að það eigi að stöðva framkvæmdir um leið og mengunar sé vart í ánni. Það hafi átt að grípa strax til aðgerða og heilbrigðiseftirlitið sé ekki sátt við það hversu lengi Veitur voru að bregðast við.

#fuglalíf #miður #nær #sín #íbúar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262888887d/ibuar-midur-sin-og-fuglalif-naer-allt-farid

📰 Aðrar fréttir

Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Mikil reiði vegna morðs á japanskri konu
Anna Yagi, japönsk kona á fertugsaldri, fannst látin á hótelherbergi í Okinawa í byrjun mánaðarins eftir að hafa verið kyrkt.The Times segir að lögreg...
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...