Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“
Á sama tíma og vopnahlé við Íran hékk á bláþræði og Repúblikanaflokkurinn stóð frammi fyrir pólitískri áhættu vegna kostnaðar stríðsins, sá Donald Trump Bandaríkjaforseti til þess að blaðamenn sem voru saman komnir á forsetaskrifstofunni vissu hvað honum lá helst á hjarta: endurbætur á hinni sögufrægu spegiltjörn við Lincoln-minnisvarðann.
Í fyrsta sinn sem Donald Trump Bandaríkjaforseti kom opinberlega fram í nokkra daga hóf hinn 79 ára gamli forseti undirritundarathöfn forsetatilskipana með umræðum um endurbætur á spegiltjörninni, en vegna þeirra hefur einum vinsælasta ferðamannastað höfuðborgarinnar verið lokað.
„Hún var opnuð árið 1922 og lak alltaf,“ kvartaði forsetinn.
Stærri en skýjakljúfar
Trump, sem sjaldan er líflegri en þegar hann ræðir byggingarframkvæmdir og endurbætur, hrósaði því „mjög sérstaka efni“ sem notað var við verkið. Áætlað er að tjörnin verði opnuð aftur fyrir þjóðhátíðardaginn þann 4. júlí, þegar 250 ár verða liðin frá sjálfstæði Bandaríkjanna.
Framkvæmdin hefur sætt gagnrýni vegna kostnaðar og eins vegna þess hvernig samningurinn um verkið var gerður.
Með því að nota skýringarmynd sem bar yfirskriftina „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“ bar Trump saman stærð tjarnarinnar við hæð þriggja frægra bygginga, þar á meðal Empire State-bygginguna í New York.
Bar sig saman við Martin Luther King
Trump minntist …