Eldur kviknaði á kvenna- og ungbarnadeild ríkissjúkrahúss í Islamabad, höfuðborg Pakistans, í morgun og varð minnst 14 hvítvoðungum að bana. Aðeins einu barni var bjargað.
Spítalinn er einn sá stærsti í borginni. Fjölskyldur söfnuðust saman fyrir utan í áfalli og mikilli sorg. Einn maður tjáði BBC Urdu að hann hefði misst þriggja daga gamalt barnið sitt.
Stjórnvöld í Pakistan heita ítarlegri rannsókn og forsætisráðherrann Shehbaz Sharif hefur rekið hátt settan embættismann innan heilbrigðiskerfisins.
Eldurinn kviknaði í loftkælingu og breiddist hratt út. Það voru 15 nýfædd börn á deildinni og aðeins tókst að bjarga einu þeirra.