Hvíta húsið hefur formlega dregið til baka ráðningu Lance Schroyer sem forstjóra Innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, sem jafnan gengur undir heitinu ICE.
Stofnunin leikur lykilhlutverk í harðri innflytjendastefnu Donalds Trump forseta, sem tilnefndi Schroyer í júní með þeim orðum að hann væri maðurinn sem gæti komið ólöglegum innflytjendum burt úr landinu. Tilnefningin vakti strax nokkra undrun.
Schroyer er fyrrverandi lögreglumaður frá Oklahoma og hefur starfað sem háttsettur ráðgjafi Markwaynes Mullin ráðherra heimavarna. Fjölmargir embættismenn bentu á að hann hefði hvorki starfað innan ICE né stýrt stórri löggæslustofnun áður.