Jón Magnússon skrifar:
Ætíð hefur þótt mannsbragur af því, þegar einhver er hafður fyrir rangri sök, að léðrétta það og bæta viðkomandi einstaklingi það tjón, sem hann hefur orðið fyrir vegna rógs, níðs eða bæjarslúðurs sem hann hefur orðið fyrir að ósekju.
Félagið Æruvernd var stofnað fyrir nokkru til að berjast fyrir æruvernd fólks og hefur einbeitt sér að því að skoða ávirðingar í garð sr. Friðriks Friðrikssonar, sem hafðar voru þá fyrst uppi þegar hann hafði legið 60 ár í gröf sinni.
Til þess að hafa það sem sannara reynist eins og línur voru lagðar í árdaga Íslandsbyggðar af Ara fróða Þorgilssyni við ritun Landnámu og Íslendingabókar höfum við leitast við að ná sambandi við alla aðila sem komu að máli sr. Friðriks til að geta borið sannleikanum vitni. Ýmsir hafa gefið kost á viðtali og frekari skoðun, sem hefur verið gagnlegt og leitt enn frekar til þeirrar niðurstöðu að ávirðingarnar í garð sr. Friðriks eru úr lausu lofti gripnar.
Enn skal haldið áfram í sannleiksleit í þessu málil Þess vegna hefur Æruvernd boðað til málþings í Seltjarnarneskirkju kl. 14 á morgun sunnudaginn 19.apríl undir heitinu "Hvað er sannleikur? Æruvernd og dómstóll samfélagsmiðla.
Á málþinginu verður fjallað um rannsókn, sem KFUM og K gekkst fyrir og hefur ekki fengist endurskoðuð niðurstöður sínar þrátt fyrir að rannsóknin hafi verið framkvæmd þvert á og í andstöðu við grundvallarreglur réttarríkisins um það með hvaða hætti staðið skuli að slíkri rannsókn.
Framsögumenn á málþinginu verða Björn Jón Bragason sagn- og lögfræðingur, Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrum lögmaður og síðar Hæstaréttardómari og Valgerður Snæland Jónsdóttir. Síðan verður gerð grein fyrir afstöðu ýmissa félaga sem tengjast sr. Friðrik beint sem stofnanda þeirra og síðan verða Pallborðsumræður, þar sem allir geta tekið þátt í umræðum.
Við í Æruvernd viljum leiða sannleikann í ljós og þess vegna göngumst við fyrir málþinginu í Seltjarnarneskirkju kl 14 á morgun í þeirri von að það muni sýna enn betur fram á sannleikann í þessu máli.
Skora á þig að koma í Seltjarnarneskirkju kl. 14 í dag 19.apríl til að verða margs vísari og taka þátt í umræðum um þetta mikilvæga mál.