Ellefu ára íröksk stúlka og tólf ára stúlkur frá Sýrlandi og Afganistan eru meðal barnanna sem koma fram í nýbirtum gögnum um barnahjónabönd í þýska sambandslandinu Baden ürttemberg. Þar hafa yfirvöld skráð 358 mál frá árinu 2012, en aðeins átta hjónabönd verið formlega ógilt.
Í gögnunum er meðal annars hjónaband tólf ára sýrlenskrar stúlku og 28 ára sýrlensks karlmanns. Það er eitt þeirra 350 mála sem voru afgreidd án þess að hjónabandið væri formlega ógilt.
Tölurnar koma fram í svari innanríkisráðuneytis Baden Württemberg við fyrirspurn Nikolaos Boutakoglou og Emely Knorr, þingmanna AfD á þingi sambandslandsins. Svarið var birt 7. október og nær aðeins til þessa eina sambandslands, ekki Þýskalands alls.
Ellefu ára stúlka gift sautján ára dreng
Meðal þeirra hjónabanda sem voru ógilt var hjónaband ellefu ára írakskrar stúlku og sautján ára íraksks drengs. Það var ógilt árið 2020.
Árið 2018 var hjónaband fjórtán ára afganskrar stúlku og þrítugs afgansks karlmanns ógilt. Árið 2024 voru meðal annars ógilt hjónabönd sextán ára þýskrar stúlku og 25 ára pakistansks karlmanns, og sextán ára sýrlenskrar stúlku og 27 ára sýrlensks karlmanns.
Meðal ríkisfanga sem koma ítrekað fyrir í gögnunum eru sýrlenskt, afganskt, írakskt, tyrkneskt og búlgarskt. Þar eru einnig pakistanskir ríkisborgarar og einstaklingar með þýskt ríkisfang.
350 mál afgreidd án formlegrar ógildingar
Yfirvöld í Tübingen hafa haft umsjón með þessum málum fyrir allt sambandslandið frá apríl 2012. Þau fjalla um barnahjónabönd sem stofnað var til erlendis.
Í svarinu segir að sjaldan hafi verið farið fram á ógildingu hjónabands vegna þess að sá sem var undir lögaldri við giftinguna hafi oftast náð átján ára aldri þegar málaferli komust á þann stað.
Í fyrirspurninni eru fleiri dæmi um ástæður annarrar afgreiðslu, meðal annars andlát maka, að fallið hafi verið frá ógildingu eða að parið hafi gifst aftur erlendis. Ekki er sundurliðað hvaða ástæða á við í hverju þeirra 350 mála.
Í Þýskalandi er óheimilt að ganga í hjónaband fyrir átján ára aldur. Hjónabönd sem stofnað er til erlendis þegar annar aðilinn er yngri en sextán ára eru venjulega ógild samkvæmt þýskum lögum. Um hjónabönd sextán og sautján ára einstaklinga gilda reglur um ógildingu og tilteknar undantekningar.
Börn yngri en tólf ára í hættu á að vera þvinguð í hjónaband
Gögnin sýna einnig að ráðgjafarþjónustan Yasemin sinnti 80 málum árið 2025 þar sem fólk var í hættu á að verða þvingað í hjónaband. Þar af voru 33 einstaklingar undir átján ára aldri.
Fjórir þeirra voru yngri en tólf ára, fimm voru tólf ára og tveir þrettán ára.