Þorleifur greindi frá trúlofuninni á samfélagsmiðlum í gærkvöldi. Þar birti hann mynd af höndum parsins með trúlofunarhringa og skrifaði við hana: „Hún sagði já“. Hamingjuóskum hefur rignt inn til parsins síðan.
Parið hefur haft nóg fyrir stafni síðustu mánuði og flakkað milli Kína, Tékklands, Þýskalands og Sviss. Þau hafa verið í Zurich í sumar þar sem þau frumsýndu óperuna Tannhäuser eftir Wagner í óperuhúsinu í Zurich 21. júní og aðeins nokkrum dögum síðar eignuðust þitt sitt annað barn saman, lítinn son, en fyrir áttu þau dótturina Þórhildi Nótt.
Uppsetningin á Tannhäuser hefur gengið vel og var hún valin sýning ársins af óperutímaritinu Opernfreund auk þess sem leikmynd Ernu var valin leikmynd ársins og hljómsveitarstjórinn Tugan Sokhiev valinn hljómaveitarstjóri ársins.