Ríkissaksóknari telur ekki efni til að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar sem féll fyrr í sumar í hryðjuverkamálinu svokallaða.
Með dómi Landsréttar voru sakborningarnir tveir, Sindri Snær Birgisson og Ísidór Nathansson, sakfelldir fyrir vopnalagabrot. Sindri Snær var dæmdur í 18 mánaða fangelsi og Ísidór í 15 mánuði. Það eru sömu dómar og þeir fengu í Landsrétti í mars 2025.
Þeir voru báðir sýknaðir af ákærum um brot á hryðjuverkalögum.
Í tilkynningu ríkissaksóknara segir að með dómi Hæstaréttar í mars á þessu ári hafi fyrri dómur Landsréttar verið ómerktur og málinu vísað aftur til löglegrar meðferðar og dómsálagningar að nýju.
Í dómi Landsréttar frá 18. júní hafi verið brugðist við þeim atriðum sem Hæstiréttur gerði athugasemdir við og voru grundvöllur brottvísunarinnar. Niðurstaða Landsréttar um að sýkna ákærða af brotunum sé að verulegu leyti reist á mati réttarins á sönnunargildi munnlegs framburðar ákærðu og vitna sem Hæstiréttur geti ekki endurmetið.
Málið hafði staðið frá árinu 2022. lögreglan boðaði til blaðamannafundar í september eftir að Sindri, Ísidór og tveir aðrir menn voru handteknir. Þeir voru grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk hér á landi.
Við handtökurnar fundust margar byssur, en lögregla hafði líka fylgst með samskiptum sakborninga um nokkurra vikna skeið. Þeir ræddu meðal annars um að fremja fjöldadráp dulbúnid sem lögreglumenn.
Sindri og Ísidór báru því við að þessi samskipti hefðu verið sett fram í gríni.
Fréttin var uppfærð.