Arkady Dvorkovich forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, ákvað í gær að láta tímabundið af störfum. Það gerði Dvorkovich því hann er kominn á lista Evrópusambandsins yfir Rússa sem sæta þvingunaraðgerðum vegna stríðsins í Úkraínu.
Áður en Dvorkovich tók við sem forseti FIDE í október 2018 hafði hann gegnt valdamiklum embættum innan rússneska stjórnkerfisins. Hann var varaforsætisráðherra í tíð Dmitry Medvedevs sem forsætisráðherra á árunum 2012 til 2018. Árin fjögur á undan var Dvorkovich aðstoðarmaður Medvedevs þegar sá síðarnefndi gegndi embætti forseta landsins.
Fyrrverandi heimsmeistari tekur við
Í tilkynningu Dvorkovich sem er birt á vef FIDE segir hann aðgerðir Evrópusambandsins óréttlátar og að hann muni beita öllu sem í hans valdi stendur til að fá ákvörðuninni hnekkt.
Í ljósi þessa geti hann ekki setið í stóli forseta FIDE því það gæti staðið í vegi fyrir að starfsemi sambandsins gangi snurðulaust fyrir sig.
Varaforsetinn tekur því við embættisskyldum forsetans. Það er indverski stórmeistarinn Viswanathan Anand. Hann var heimsmeistari í skák frá 2000 til 2002 og frá 2007 til 2013.