Hvalaskoðunarbáturinn Brimir var dreginn vélarvana til hafnar á Árskógssandi síðdegis í dag. Tveir voru um borð í bátnum en engir farþegar. Hríseyjarferjan Sævar dró bátinn inn til hafnar en Brimir varð vélarvana rétt fyrir utan Árskógssand.
Engin slys urðu á fólki og björgunin gekk vel.
Fréttin var leiðrétt. Brimir var dreginn til hafnar á Árskógssandi.