Appelsínugular viðvaranir tóku gildi á Suðurlandi klukkan 05:00 og er byrjað að hvessa verulega á suðurhluta landsins. Á Stórhöfða mældist vindhraði 37 m/s klukkan 06:00 og vindur í mestu hviðu fór upp í 45 m/s.
Allt flug á Keflavíkurflugvelli er á áætlun en á vef Reykjavíkurflugvallar kemur fram að næstu upplýsingar fyrir flug til Akureyrar, Egilsstaða og Hornafjarðar verði gefnar klukkan 09:00.
Þá er búið að loka hringveginum austan við Markarfljót og austur að Vík í Mýrdal og verður hann lokaður til 09:00 að minnsta kosti.
Á vef Vegagerðarinnar kemur einnig fram að þar sem spáð sé óvenjulágum þrýstingi yfir landinu í dag geti sjór gengið á land á strandsvæðum, meðal annars við Vík sem og á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði sem og á Húsavík fyrir norðan.
Á Breiðafirði tekur appelsínugul viðvörun gildi klukkan 11:00, á Vestfjörðum klukkan 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 21:00 í kvöld.
Fréttin verður uppfærð