Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna - MBL.IS

Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna - MBL.IS

Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna - MBL.IS

„Ég held að fleiri og fleiri séu núna að átta sig á því að tæknirisarnir eru að gera hluti sem þeir ættu ekki að vera að gera og fólk er að leita að betri lausnum,“ segir Jón von Tetzchner, frumkvöðull, fjárfestir og forstjóri norsk-íslenska tæknifyrirtækisins Vivaldi Technologies, fyrirtækisins á bak við Vivaldi-vafrann, í samtali við mbl.is.

Yfir tæknirisa notar hann hugtakið „big-tech“ en við höldum okkur við tæknirisa í viðtalinu og þar með átt við risastór bandarísk tæknifyrirtæki á borð við Amazon, Apple, Google, Microsoft og Meta eiganda Facebook, fyrirtæki sem fylgjast grannt með notendum lýðnetsins og skrá hvert þeirra fótmál í nafni markaðssetningar sem ekki allir eru sérstaklega hrifnir af.

Vivaldi, í samstarfi við Gróttu á Seltjarnarnesi, hélt í dag viðburð á Vivaldi-vellinum þar á nesinu, undir heitinu „Digital Dugnad“, sem er vitundarátak sem svissneska tæknifyrirtækið Proton og Vivaldi standa í sameiningu að um allan heim, eins konar vakning um veldi tæknirisanna og sagði Haakon Rølmann, markaðs- og samskiptastjóri Vivaldi, blaðamanni frá því að í dag hefði fyrsta skrefið verið tekið í átt að því að miðla átakinu til netnotenda heimsins.

Ætla að sýna heiminum einmitt þetta

Vivaldi er norskt fyrirtæki jafnframt því að vera íslenskt og hugtakið „dugnad“ er enda norskt. Í Noregi er það notað um athafnir á borð við þegar nágrannar í fjölbýli koma saman og taka til í garðinum eða þrífa stigaganginn og margar hendur látnar vinna létt verk.

„Það sem við ætlum að sýna heiminum er einmitt þetta, hvernig leysa má stór verkefni sem erfitt er að takast á hendur einn, en verða létt þegar margir leggja gjörva hönd á plóg,“ segir Rølmann og kveður tilganginn með samátakinu á Seltjarnarnesi í dag vera að bjarga lýðnetinu. „Og það er ekkert smáverkefni, það er risastórt,“ bætir hann við.

Á Gróttuvelli í dag. Bláklæddur vinstra megin er Haakon Rølmann, …
Á Gróttuvelli í dag. Bláklæddur vinstra megin er Haakon Rølmann, markaðs- og samskiptastjóri Vivaldi, þá Marianne Kvan, starfandi sendiherra Noregs á Íslandi, og Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Ljósmynd/André Skjeggestad

„Nágrannar, vinir, fjölskylda, vinnufélagar og bara allir, við viljum koma boðskapnum til allra þeirra sem við náum til svo fólk geti tekið fyrsta skrefið frá tæknirisunum, hvort sem það er stórt eða lítið,“ segir samskiptastjórinn og vitnar í heimsþekkt orð fyrsta mannsins sem steig fæti á tunglið hér um árið og talaði um lítið skref fyrir manneskju en risastórt fyrir mannkynið þótt hann mismælti sig reyndar.

Völdu frelsunardaginn norska

„Ekki skiptir öllu máli hvort fólk byrjar á að skipta um leitarvél eða gerir eitthvað meira, allt færir okkur í átt að því að taka valdið úr höndum tæknirisanna og það er einmitt mjög í anda „dugnad“, að við tökum höndum saman til að koma einhverju til leiðar,“ heldur hann áfram og segir frá átaki sem táknrænt var haldið á „frelsunardaginn“ í Noregi eða „frigjøringsdagen“ sem er 8. maí þegar Norðmenn minnast sama dags árið 1945 þegar landið losnaði undan járnhæl þýska hernámsliðsins við lok síðari heimsstyrjaldar.

Varla þó stætt á að segja að þar sé ekki leiðum að líkjast.

„Þá vorum við með 200 sjálfboðaliða um allan Noreg sem ræddu við fólk á kaffihúsum, götum, bókasöfnum og úti um allt, sögðu frá því hvernig losna mætti undan oki stórfyrirtækjanna og svo gátu viðmælendurnir komið boðskapnum áfram,“ segir hann frá.

Rølmann segir sérstakan fatnað hafa verið gefinn út í tilefni dagsins í dag, bol með áletruninni „Digital Dugnad“ og þar fyrir neðan „Margar hendur vinna létt verk“.

Margar hendur vinna létt verk. Gróttustúlkur taka höndum saman í …
Margar hendur vinna létt verk. Gróttustúlkur taka höndum saman í stuttermabolum merktum verkefni Vivaldi og Proton. Ljósmynd/André Skjeggestad

Vinna að kynnast einhverju nýju

Áfram heldur Jón von Tetzchner sem viðurkennir að „dugnad“ sé ekki auðþýtt á íslensku, alla vega ekki í þeirri merkingu sem Norðmenn noti það. „En þetta gengur í þessu tilfelli bara út á að skýra út fyrir fólki í litlum skrefum að það finnist eitthvað annað en tæknirisarnir. Þú kaupir tölvu eða síma og fólk heldur einhvern veginn að það sé læst inni í einhverju kerfi sem sé mjög erfitt að brjótast út úr og skipta yfir í eitthvað annað. Auðvitað er það alltaf smá vinna að kynnast einhverju nýju en ég held að fleiri og fleiri séu á því að það sé kominn tími til að leita að öðrum lausnum,“ segir forstjóri Vivaldi.

Hann segir mikinn áhuga víða hjá fólki á því að snúa baki við risafyrirtækjunum með sínar vefnjósnir sem nýttar séu í markaðslegum tilgangi sem sniðinn er að því að selja netnotendum varning eða þjónustu sem byggir á því hvað fólk skoði og lesi á netinu.

„Það er verið að ýta hlutum á fólk sem það oft ekki vill fá og það trúir því að það verði að láta þetta yfir sig ganga – en það finnast lausnir og það finnast góðar lausnir og fólk vill hjálpa öðrum yfir í aðrar lausnir, evrópskar lausnir og bara eitthvað annað en „big-tech“. Núna er ég búinn að vera að byggja vafra síðan 1994 og ég hef alltaf litið svo á að annað væri ómögulegt en að gera samninga við fyrirtæki eða ríkisstjórnir. Það er hins vegar að breytast,“ segir Jón.

Fólk sé nú tekið að hugsa meira út í staðbundnar lausnir og hverfa frá því að úthýsa öllu til risafyrirtækja.

Ýta ekki rafmynt að fólki

„Nú erum við farin að sjá fyrirspurnir frá ríkisstjórnum og fyrirtækjum, sem við höfum ekki séð áður, þannig að umhverfið er orðið breytt og nú er fólk í meira mæli farið að íhuga evrópskar lausnir,“ segir hann enn fremur.

Hvert yrði þá það draumaumhverfi sem þið sæjuð fyrir ykkur?

„Fyrst og fremst að fólk skipti yfir í Vivaldi sem er norsk-íslenskur vafri, það eru nú ekki margir vafrar í Evrópu yfirhöfuð. Við erum ekki að safna gögnum eða reyna að ýta rafmyntum, gervigreind eða öðru að fólki. Ef fólk vill nota gervigreind getur það notað hana en vafrinn safnar ekki gögnum um hvað þú ert að gera. Ég held að langflestum finnist þetta ganga of langt orðið,“ svarar hann.

„Fókus hjá okkur er að kynna þessi minni fyrirtæki. Það …
„Fókus hjá okkur er að kynna þessi minni fyrirtæki. Það finnst mikið af góðum lausnum. Fólk þarf bara að vera viljugt til að prófa eitthvað nýtt,“ segir Jón von Tetzchner. Ljósmynd/Vivaldi

Fyrirtækin finnist fyrir þá sem vilji finna lausnirnar en það þýði þá að fólk þurfi að vera viljugt til að prófa eitthvað nýtt. „En gleðin við að prófa eitthvað nýtt er ríkuleg, það eru ekki bara risafyrirtæki sem geta búið til lausnir, flott lítil fyrirtæki eru að búa til flottar lausnir og okkar fókus er að byggja upp þessi fyrirtæki svo fólki bjóðist góðir valmöguleikar,“ heldur Jón áfram.

Veldisvöxtur í Danmörku

Hann segir Vivaldi nú eiga sér talsverðan notendahóp á Íslandi og í Noregi og hafi notkun Vivaldi aukist um 50 til 100 prósent í flestum Evrópuríkjum síðasta árið.

Aðspurður segir hann aukninguna mesta í Danmörku, Hollandi, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi, til dæmis hafi veldisvöxtur orðið í notkun vafrans í Danmörku.

„Fólk er að leita sér að lausnum, það er ekki hrifið af þessari stöðu sem tæknirisarnir hafa. Auðvitað er ekki auðvelt að breyta um stýrikerfi í símanum þínum, þar eru að mestu bara Android og iOS. Auðvitað er hægt að fara yfir í Linux en þar eru mjög fáar lausnir í síma, á tölvu er auðveldara að fara yfir í Linux,“ segir vafrasmiðurinn.

„En vafrinn er það mikilvægasta, þú getur gert mikið í gegnum vafrann,“ segir Jón von Tetzchner, frumkvöðull, fjárfestir og forstjóri norska tæknifyrirtækisins Vivaldi Technologies sem nú hefur tekið næsta skref í að losa milljónir netnotenda undan njósnum, oki og markaðssetningu gríðarstórra og alltumlykjandi tæknifyrirtækja.



Upprunaleg slóð:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/05/30/hrifsa_heiminn_ur_klom_taeknirisanna/

📰 Aðrar fréttir

Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.