Fjölmenni kom saman á útifundi Áfram Ísland á Austurvelli. Margir tóku til máls og þar á meðal Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Fundur hreyfingarinnar Já til að sjá, var líka haldinn í gær. Fundurinn var sá síðasti í fundaröð Já til að sjá. Þar tóku margir til máls, meðal annars Hjálmar Gíslason, stofnandi GRID.
Fleiri ætla að segja nei en já samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Þetta er þriðji þjóðarpúls sumarsins og í fyrsta skipti ætla fleiri að segja nei en já.
Lára Herborg Ólafsdóttir, ein af stofnendum Áfram Íslands, segir tölurnar vera í samræmi við meðbyr sem þau hafa fundið fyrir undanfarið.
Berglind Guðmundsdóttir, ein stofnenda Já til að sjá, segir niðurstöðurnar hvetjandi á lokasprettinum.