Verð á Brent-hráolíu fór í 100 bandaríkjadali á tunnu í dag, í fyrsta skipti síðan í maí. Ástæðan er stigmagnandi átök í Mið-Austurlöndum. Hútar segjast hafa gert árásir á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu í Rauðahafinu.
Þetta eru fyrstu árásir Húta síðan þeir tilkynntu um hafnbann á sádi-arabískar hafnir í gær. Bandaríkjaforseti sagði á samfélagsmiðlum að hann myndi gera Írana ábyrga fyrir frekari áásum í Rauðahafinu og hótaði að refsa Hútum.