„Hræði­legt að sjá of­beldið sem ég beitti mig“ - Vísir

„Hræði­legt að sjá of­beldið sem ég beitti mig“ - Vísir

„Hræði­legt að sjá of­beldið sem ég beitti mig“ - Vísir

Anton er fæddur árið 1996 og ólst upp í Hlíðunum, fyrstu árin hjá báðum foreldrum. Erfiðleikarnir hafa mótað hann en í dag stendur hann keikur, með mikla sjálfsvinnu á bakinu og við blasir nýtt upphaf. Hann hefur undanfarin ár skrifað mikið og var að gefa út bókina Brotin heild: Sá sem ég yfirgaf til að lifa af.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

„Bókin er eins og smá reikningsskil hjá mér þar sem ég er að skilja við þennan kafla í lífi mínu,“ segir Anton en hann ræddi við blaðamann um erfiðleikana, sjálfsmyndina, uppbygginguna, flutninga til sólríku eyjunnar Ibiza og margt fleira.

„Þetta byrjar þegar ég missi pabba úr sjálfsvígi og fer sjálfur í kjölfarið í gegnum mitt eigið ferli um að vilja ekki lifa. Þetta áfall triggerar mín sár og mér finnst eins og eitthvað hafi yfirfærst á mig þegar hann deyr.“

Sjálfsvinna sem snérist gegn honum

Anton segir að dauðsfall föður síns hafi verið ákveðin vitundarvakning fyrir hann en hann fór ekki endilega réttu leiðina í að vinna úr því.

„Þarna fer ég að kafa mikið í þessa sjálfsvinnu sem er góð í fyrstu en byrjar síðan að snúast gegn mér. Mér fannst ég stöðugt þurfa að laga mig og breyta einhverju innra með mér því ég fékk alltaf þau skilaboð frá pabba, að ég væri aldrei nógu góður. Hann vildi alltaf að ég væri eitthvað annað.“

Anton hefur sótt marga sálfræðitíma og áttað sig á því að líklega hafi faðir hans yfirfært ákveðið sjálfshatur yfir á hann.

„Ég er núna í ákveðnu ferli að sannfæra sjálfan mig um að ég þurfi ekki að laga neitt. Allt mitt líf hef ég stöðugt viljað sanna mig, bæði í lífinu og svo náttúrulega á samfélagsmiðlum. 

Það er alltaf verið að segja manni hvernig manneskja maður á að vera, úr ýmsum áttum. Fjölskyldan manns hefur líka ákveðna ímynd af því hvað maður á að vera að gera. Svo endar maður á að vita ekki neitt hver maður er því það gefst ekkert svigrúm til að fá aðeins að anda og finna út úr því.“

Gerði hvað sem er fyrir samþykki

Pressan var gríðarleg og óumflýjanleg að sögn Antonts, sem segist aldrei upplifað að hann væri nógu góður, sama hvað hann gerði. Það byrjaði snemma en þegar hann var tíu ára gamall skilja foreldrar hans og pabbi hans flytur í aðra heimsálfu.

„Pabbi ákveður að flytja til Kína að elta viðskiptahugmyndir og drauma þangað. Mér fannst ég hafa verið yfirgefinn, börn gera sér ekki grein fyrir því hvað foreldrar eru að gera og ég man ekki eftir því að hafa kvatt hann yfir höfuð.“

Anton segist ekki muna eftir sér án kvíða. Þegar hann var tíu ára gamall flutti faðir hans í aðra heimsálfu og Anton man ekki eftir því að hafa kvatt hann. Aðsend

Föðursárið hefur verið djúpt og opið lengi og vill Anton skilja við það og leyfa því að gróa með nýju bókinni.

„Ég hef skilgreint mig út frá þessu svo lengi. Það er hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitir sjálfan mig og hvað ég var tilbúinn að gera til að fá samþykki, ást og viðurkenningu.“

Gömul sár taka stöðugt á sig nýja mynd

Í bataferlinu hefur hann þurft að fara í djúpa sjálfsskoðun og rannsaka hluta innra með sér sem hann langaði ekki að sjá en neyddist til þess.

„Ég sé núna að kvíðinn sem ég glími við byrjaði í móðurkvið. Þetta er kynslóðabundinn kvíði, þessi íslenska harka og íslenska þögn blandast þarna inn. 

Ég finn það sterkt núna að ég get ekki lengur lifað þessu lífi sem einkennist af því að þegja bara og vera litli Anton sem smækkar sig við að reyna að falla inn í umhverfið, er kamelljónið sem er alltaf að reyna að passa sig og móta sig eftir hugmyndum annarra svo honum verði ekki hafnað og verði ekki yfirgefinn aftur. Þetta eru gömul sár sem eru stöðugt að opnast og taka á sig nýja mynd.“

Fyllti í tómið með röngum hlutum

Eftir grunnskóla fer Anton í menntaskóla og byrjar að fara á djammið.

„Þarna var ég að gera alla þessa klassísku vitleysu og fiktaði meðal annars við að reykja gras sem var algjört rugl. Þegar ég lít til baka þá veit ég að ég fann mig aldrei í þessu. Mér fannst ég alltaf svarti sauðurinn sem tilheyrði ekki og var aldrei á réttum stað. 

Ég fór í gegnum nokkra vinahópa á þessum árum en það var alltaf eitthvað í mér sem mér fannst ég þurfa að fylla upp í. Ég notaði ítrekað ranga hluti í það.“

Anton hefur mikið tjáð tilfinningar sínar í gegnum sköpun, bæði með listasýningu og bókaskrifum. Aðsend

Anton elskar að skapa, skrifa og taka myndir og segist verða að leyfa hugmyndunum að flæða hjá sér.

„Það er minn kjarni, ég verð að vera frjáls í því að skapa hugmyndirnar sem ég fæ. Maður upplifir að þessi leið í lífinu sé algjörlega á skjöni við aðra, að sjá alla í kringum mig bara ákveðna leið, fylgja beinu línunni og ég hélt alltaf að það væri eina leiðin. 

Ég skammaðist mín svo mikið að vera ekki á þeirri vegferð og fannst erfitt þegar fólk var að segja mér hvað það var að gera við líf sitt og spurði mig svo. Ég hef aldrei passað í þennan kassa og mér fannst ég einskis virði því ég gat aldrei útskýrt hvað ég var að gera, eins og að fá hugmynd að listasýningu og vera að vinna að henni.“

Faðir Antons var dagdrykkjumaður í áratugi en í æsku Antons var það aldrei rætt.

„Það hefur gríðarleg áhrif á barn og ég hef lært núna að það sé einfaldlega áfall fyrir barn að sjá foreldri sitt drukkið í fyrsta sinn því þú sérð ekki þá manneskju sem þú þekkir heldur einhverja allt aðra.“

Hann sótti fundi hjá Al-Anon samtökunum og fór í gegnum ýmsa vinnu tengda meðvirkni.

„Alkóhólismi á Íslandi er náttúrulega galinn, þetta er í eiginlega öllum fjölskyldum. Þetta litaði æskuna mína og unglingsár og varð til þess að ég var stöðugt að passa mig í umhverfinu mínu.“

Hræddur við hann og um hann

Faðir Antons var á mjög slæmum stað undir það síðasta.

„Þegar ég hitti hann í síðasta skipti var hann algjörlega búinn að missa tengsl við raunveruleikann. Ég settist inn í bíl til hans og hann var í rosalegum ranghugmyndum, sagði að einhver væri að elta sig og að hann væri búinn að erfa milljarða. 

Ég sat þarna í bílnum með honum, hafði ekki hitt hann í marga mánuði og ég tæmdist alltaf algjörlega eftir að ég hitti hann. 

Þarna sá ég ekkert pabba minn lengur heldur mann sem ég var bæði hræddur um og hræddur við. 

Á aðfangadag hringir hann í mig í síðasta skiptið. Ég var að eyða jólunum hjá fyrrverandi kærustunni minni og ég horfði á símann og gat bara ekki svarað. Svo hringdi hann aldrei aftur.“

Síðustu samskipti Antons og föður hans voru mjög erfið.Vísir/Lýður

Það er erfitt fyrir Anton að lýsa því hve mikil áhrif þetta hafði á hann.

„Þetta er rosalega mótandi og ruglar mann algjörlega. Ég var alltaf að reyna að vera skjöldur fyrir sjálfan mig því ég hafði aldrei slíkan. Nú er þetta í úrvinnslu en afleiðingarnar af þessu eru miklu meiri en ég hefði getað gert mér í hugarlund. 

Ég höndla til dæmis ekkert áreiti núna. Ef hundur geltir nálægt mér þá fer ég strax í eitthvað viðbragð og þetta er rosalega líkamlegt.“

Sérð ekki þunglyndið á Instagram

Við skrif á bókinni ákvað hann svo að skilja ekkert eftir.

„Það er mjög frelsandi, ég hef verið að fela mig svo lengi og þykjast vera einhver sem ég er ekki. Þetta er í fyrsta skipti núna sem ég næ að losa um það. Eina sem ég sýndi á samfélagsmiðlum var bara ég í ræktinni og að borða einhverjar geggjaðar máltíðir. Fólk sér ekki þegar ég er andvaka á næturnar og langar ekki að lifa. 

Ég held að margir séu að ganga í gegnum þetta, að berjast við að láta allt líta ótrúlega vel út en svo að brotna að innan. Þú sérð ekki inn í sálarlíf fólks. Eftir alla þessa vinnu finnst mér ég samt hafa þróað með mér hæfileika til að sjá inn í hugarheim fólks. Ég hef svo oft verið með alls kyns grímur að ég sé núna betur grímurnar hjá öðrum.“

Sterar, peptíð og 5000 kaloríur

Hann segir samfélagsmiðla hafa verið enn önnur leiðin til að fá samþykki.

„Mitt heilsuferðalag byrjar eftir að ég missi pabba og fer í gegnum ákveðna vakningu þar sem ég sé að heilsan er það mikilvægasta sem maður á, en svo snerist það algjörlega gegn mér og það var mjög óþægilegt að sjá það gerast. 

Ég var að þvinga 5000 kaloríum í mig til að stækka eitthvað. Ég fór að nota stera til að stækka út á við og byrgja inni það sem ég vildi ekki að aðrir myndu sjá. Ég vildi ekki að fólk myndi sjá litla Anton sem væri í felum á bak við þetta.“

Anton reyndi lengi að byggja upp stóran front til að fela sig inn í honum.Aðsend

Lengi vel var hann stöðugt að reyna að réttlæta öfgarnar með því að segja sjálfum sér að hann væri að verða heilbrigðari.

„Svo var ég kominn með þrjú peptíð og tvo stera á baðherberginu mínu. Það voru ákveðin tímamót hjá mér þegar ég horfi á mig í spegilinn heima og þekkti mig ekki lengur. 

Ég var búinn að vakna á hverjum einasta degi í plathlutverki og þarna sá ég bara að það var allt í drasli, nálar á borðinu og glös af sterum. 

Ég horfði á mig og hugsaði: „Hver er þessi maður og hvert fór hann?“ Það er ótrúlegt að hugsa hve oft ég yfirgaf sjálfan mig til að vera einhver sem ég hélt að fólk vildi að ég væri.“

Eftir að hafa bælt tilfinningar niðri lengi fann Anton í fyrstu fyrir mikilli reiði.

„Ég leyfði tilfinningunum aldrei að koma fram og svo blússa þær upp og það er svo mikilvægt. Ég held að þessi bæling margra sé ástæðan fyrir því að einstaklingar eru til dæmis að dópa sig eða ráðast á annað fólk, þetta er einhver leið til að flýja og deyfa þennan kvíða í maganum sem er alltaf að segja manni að maður sé ekki nóg og reyna að selja manni einhverja lausn, hvort sem það sé bótox, sterar eða hvaðeina.“

Tímaleysi og frelsi á Ibiza

Það eru kaflaskil hjá Antoni og ævintýri handan við hornið.

„Ég keypti mér flugmiða til Ibiza og á ekki miða heim. Það er ekkert plan annað en að finna bara kjarnann minn.“

Anton hlakkar til að fara í sólina, spá ekki í klukkunni, leyfa sér að flæða og finna kjarnann sinn.Aðsend

Þegar tækifærið gafst stökk Anton beint á það.

„Vinur minn var að taka ljósmyndir á eyjunni og kona sem hann gisti hjá var að leita að leigjanda í húsið. Þegar hann sagði mér það sendi ég beint á konuna og fékk svar á innan við hálftíma. Ég var búinn að skrifa þennan draum niður hjá mér í tvö ár og núna er loksins komið að því. 

Hér heima finnst mér ég ekki enn treysta umhverfinu til að leyfa mér að vera ég sjálfur. Mig langar að rjúfa mynstrið hjá mér, fara út í sólina, slaka á í nýju umhverfi, finna fyrir öryggi aftur og reyna að finna svör innra með mér. Ég er svo vanur því að reyna að stjórna öllu svo ekkert óvænt gerist en nú vil ég leyfa mér að flæða. Núna veit ég ekkert hvað er að fara að gerast og það er frelsandi,“ segir Anton fullur tilhlökkunar að lokum.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

#beitti #hræðilegt #ofbeldið #sem #sjá


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262926276d/-hraedilegt-ad-sja-ofbeldid-sem-eg-beitti-mig-

📰 Aðrar fréttir

Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 2
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 2
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 2
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.