Bandaríkjaforseti hótar að sprengja brú og orkuver í Íran fyrir hverja árás sem þeir gera á Hormússundi. Bandaríkjaher hefur gert loftárásir á Íran ellefu daga í röð og Íranar svarað í sömu mynt. Olíuverð hækkaði snarpt í dag og fór yfir 95 bandaríkjadali, í fyrsta skipti í sex vikur.
Hóta árásum og hefndarárásum
Donald Trump Bandaríkjaforseti hafði í hótunum á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag. Þar sagði hann Bandaríkin ætla að sprengja og eyðileggja eina brú og eitt orkuver, meðal annars í höfuðborginni Tehran, í hvert skipti sem Íranar skytu á skip á Hormússundi.
Bandaríkin hafa gert loftárásir á Íran ellefu daga í röð eftir að vopnahléi milli ríkjanna var slitið. Það hafði verið í gildi síðan í apríl. Bandaríkjaher gerði loftárásir á eyjuna Larak undan strönd Írans í Hormússundi í dag, samkvæmt írönskum fjölmiðlum.
Íranar svöruðu hótunum Trump með því að heita því að gera hefndarárásir á borgaralega innviði í heimshlutanum, þar með talið árásir á brýr og orkuver. Heilbrigðisráðuneyti landsins sagði fimmtíu og þrjá hið minnsta hafa látið lífið í loftárásum Bandaríkjanna síðan 27. júní.
Hútar setja hafnbann á sádí-arabískar hafnir
Hútar, sem eru hliðhollir Írönum, tilkynntu um hafnbann á sádí-arabískar hafnir í dag og vöruðu alþjóðleg skip við því að sigla um Rauða hafið. Hótanir Húta vekja ótta um að truflanir á annarri mikilvægri flutningaleið fyrir olíu gætu takmarkað enn frekar framboð á olíu á alþjóðavísu.
Olíuverð hækkaði snarpt í dag vegna átakanna. Tunna af Brent-hráolíu fór yfir 95 bandaríkjadali, í fyrsta skipti í sex vikur. Verð á hráolíu fór mest í 126 dali á tunnu í apríl en hafði lækkað niður í 71 dal í byrjun júlí. Síðustu daga hefur verðið hins vegar hækkað aftur þar sem átök hafa blossað upp á ný.