Samkvæmt heimildum Vísis hringdi maðurinn á skrifstofu Hagkaupa og hótaði að mæta þangað og beita skotvopni. Í kjölfarið var lögreglu gert viðvart og sérsveit ríkislögreglustjóra kölluð til aðstoðar.
Hagkaup ákváðu að senda starfsfólk skrifstofunnar heim í öryggisskyni á meðan málið var til skoðunar. Aðgerðir lögreglu beindust að því að bregðast við hótuninni, tryggja vettvang og reyna að hafa uppi á manninum.
Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir lögreglu hafa grun um hvaða maður hafi verið þar að verki. Hann hafi þó ekki enn verið handtekinn og lögregla hafi ekki náð að ræða við hann.