Hollenska ríkisútvarpið AVROTROS greinir frá þessu í tilkynningu. Þar segir að Holland muni ekki taka þátt þar sem keppnin teljist ekki lengur hlutlaus þar sem eitt ríkjanna sem tekur þátt eigi enn í stórfelldum hernaðarátökum.
Mannúðarkrísa á Gasa og viðvarandi takmarkanir á fjölmiðlafrelsi hafi stuðlað að vaxandi ágreiningi í kringum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva undanfarin ár.
„Pólitísk spenna í Mið-Austurlöndum hefur veruleg áhrif á keppnina og hefur leitt til djúpstæðs ágreinings,“ segir í tilkynningunni.
Það endurspeglist í sniðgöngu fimm ríkja á keppninni í fyrra en Ísland var meðal þeirra sem sniðgengu Eurovision í ár. Vísað var til þess að þátttaka ísraelska ríkissjónvarpsins KAN hefði valdið óeiningu, bæði meðal aðildarstöðva Sambands evrópskra útvarpsstöðva og almennings.
Auk Íslands og Hollands tóku Spánverjar, Írar og Slóvenar ekki þátt í keppninni í ár. Þar að auki hafi fyrrum sigurvegarar skilað verðlaunagripum sínum og yfir þúsund tónlistarmenn skorað á EBU í opnu bréfi að grípa inn í. Það undirstriki þörfina fyrir skýran ramma til að meta þátttöku landa sem eiga í hernaðarátökum.
Þátttaka sé ekki í samræmi við gildi AVROTROS
Undanfarið ár hafi hollenska ríkisútvarpið skorað á Samband evrópskra sjónvarpsstöðva (EBU) að setja gagnsæjar reglur um þátttöku landa sem eiga í hernaðarátökum.
Hins vegar veiti nýlega tilkynntar breytingar af hálfu EBU ekki nægilegt traust á því að sjálfstætt og hlutlaust eðli Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hafi verið endurreist. Enn þyki AVROTROS óljóst við hvaða kringumstæður þátttaka samræmist hlutlausri keppni og hvenær ekki.
„Þátttaka er því ekki lengur í samræmi við gildi AVROTROS: áreiðanleika, sjálfstæði og mannúð.“
Ekki megi halda keppnina þar sem vopnuð átök fari fram
Nýverið gerði EBU breytingar á reglum keppninnar en þær munu vera í gildi í keppninni á næsta ári. Þær kveða meðal annars á um að sigurþjóðir geti misst rétt á að halda keppnina ef vopnuð átök eiga sér stað í landinu.
„Þar sem vopnuð átök, viðkvæm landfræðileg staða eða aðrar ástæður hafa veruleg áhrif á öryggi, vernd eða stöðugleika á landinu eða nærliggjandi svæði þátttökusjónvarpsstöðvar, skal sú þátttökusjónvarpsstöð ekki vera gjaldgeng til að halda næstu Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ef framlag hennar sigrar,“ segir í tilkynningu EBU.