Það er fjölmennt er á Ísafirði í dag, fjögur skemmtiferðaskip eru komin til hafnar með yfir sex þúsund farþega.
Gylfi Ólafsson bæjarstjóri segir að það sé líf og fjör í bænum þótt veðrið sé leiðinlegt. Fólk sé vel klætt og njóti alls sem Ísafjörður hefur upp á að bjóða.
Núningur milli rútubílstjóra á bryggjunni
Þegar svona mörg farþegaskip koma til hafnar á sama tíma er að mörgu að huga. Fá rútustæði eru við bryggjuna og það voru ekki allir á eitt sáttir í morgun þegar sækja átti farþega í bílferð um Vestfirði.
„Málið er þetta, ég kem þarna svona 5-10 sinnum á sumri að sækja fólk úr skemmtiferðaskipum og það eru bara vestfirsku fyrirtækin sem eru með bestu aðstöðuna og svo fá bara þeir að sækja fólk sem eru í áskrift að örfáum bílastæðum,“ segir Steinþór Ólafsson rútubílstjóri. Hann var ekki sáttur við Ísfirðinga og fyrirkomulagið við höfnina. Hann hafi ekki mátt koma nálægt höfninni í morgun og orðið að leggja langt frá þegar hann sótti farþegana.
Rútustæðin takmörkuð auðlind
Hilmar Kristjánsson Lyngmo, hafnarstjóri á Ísafirði, segir að á svona dögum verði að huga að bæði farþegum og þeim sem þjónustu þá og hafnarstarfsmenn séu allir af vilja gerðir að leysa málin:
„Hérna á höfninni á Ísafirði eru rútustæði takmörkuð auðlind, miðað við þau stæði sem eru hérna og takmarkað pláss. Við verðum að hugsa um öryggi farþegar sem eru að labba og gönguleiðum svo þau fari ekki út á götur eða inn á rútustæði hjá öðrum.
Þetta eru svona vaxtaverkir. Það kom strax í ljós að stæði, sem voru áætluð og teiknuð, eru ekki nógu mörg. Við reynum að vinna með öllum en það er lágmarkið að tala við mann, þá er kannski hægt að finna lausnir áður en allt fer í háaloft.“