Sex skiptu með sér öðrum vinningi og fær hver þeirra rúmar 75,5 milljónir króna. Fjórir af þeim miðum voru keyptir í Þýskalandi, einn á Spáni og einn í Króatíu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Líkt og fyrr segir voru fimmtán með þriðja vinning. Þar af voru ellefu miðar keyptir í Þýskalandi, einn í Noregi, einn í Tékklandi og einn í Póllandi. Íslenski miðinn var keyptur í Söluturninum í Hraunbergi í Reykjavík.
Enginn var með Jóker kvöldsins en einn var með annan vinning þar og fær fyrir það 125 þúsund krónur. Miðinn er í áskrift.
Einn á móti þremur milljónum
Tölfræðilegar vinningslíkur á því að fá fimm réttar aðaltölur í EuroJackpot og þar með þriðja vinning í útdrætti eru einn á móti 3.107.515, samkvæmt reglugerð um talnagetraunir Íslenskrar getspár. Líkurnar á því að fá fyrsta vinning eru einn á móti 139.838.160.