„Ég held að málefni Icelandair séu mikilvægari stjórnvöldum heldur en innganga í Evrópusambandið.“
Þetta segir Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, í viðtali í Spursmálum þar sem hann varar við alvarlegri stöðu flugfélagsins.
Hann segir félagið mikilvægasta fyrirtæki landsins og að allt hagkerfið byggist á öflugum flugsamgöngum. Deilur innan félagsins og langvarandi taprekstur séu því mikið áhyggjuefni. Marinó segir að ef Icelandair hyrfi af markaði myndi tengikerfi félagsins rakna upp með verulegum afleiðingum fyrir íslenskt atvinnulíf, ferðaþjónustu og samkeppnishæfni landsins.
Segir hann að í viðvarandi taprekstri séu það í raun hluthafar sem fjármagni launakostnað fyrirtækisins. Það gangi ekki upp. Jafnvel þótt fyrirtæki séu þjóðhagslega mikilvæg sé ekki sjálgefið að þau lifi af.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu og Moggaappinu í dag á blaðsíðu 6.
