Hlutabréfaverð í Sýn hefur lækkað um fimm prósent í morgun á sama tíma og verðmæti hlutabréfa í Símanum hefur aukist um tvö og hálft prósent. Þetta gerist morguninn eftir að tilkynnt var að ekkert yrði af kaupum Ása, móðurfélags Símans, á fjölmiðlum Sýnar á borð við Vísi og Bylgjuna.
Frekar lítil viðskipti eru að vísu á bak við breytingarnar í morgun. Bréf í Sýn hafa gengið kaupum og sölum fyrir átta milljónir og bréf í Símanum fyrir 45 milljónir.
Sýn og Síminn greindu frá því í mars að samkomulag hefði náðst um helstu skilmála fyrir því að Síminn myndi kaupa vefmiðla og útvarpsstöðvar af Sýn fyrir rúma fimm milljarða króna.
Í gærkvöld greindu Sýn og Ásar frá því að ekki yrði af viðskiptunum.