Hlutabréfaverð í Beru lækkaði í morgun þegar opnað var fyrir viðskipti í Kauphöllinni. Skömmu fyrir klukkan ellefu var gengið 5,07 prósentum lægra en það var við opnun markaðar. Verðmæti hlutabréfa í Beru hefur ekki verið lægra síðan í desember 2023.
Bera er móðurfélag Ölgerðarinnar Egill Skallagrímsson.
Samkeppniseftirlitið gerði húsleit í höfuðstöðvum fyrirtækisins á föstudag.
Fréttaskýringaþátturinn Kveikur hefur undanfarna mánuði rannsakað ásakanir keppinauta Ölgerðarinnar um að fyrirtækið hafi komið í veg fyrir að þeir gætu keppt um viðskipti á drykkjarvörumarkaði. Þeir sögðu að Ölgerðin hefði markvisst reynt að útiloka vörur þeirra á börum, veitingastöðum, útihátíðum og nemendafélögum með einkaréttarsamningum.
Forsvarsmenn Beru hafa sagt að þeir hafi engar upplýsingar um að brot hafi verið framin í starfsemi fyrirtækisins.