Mikil óvissa ríkir um framtíð starfsfólks heilbrigðiseftirlitsins vegna lagabreytinga sem nú eru til meðferðar á Alþingi, að sögn Þorkels Heiðarssonar, formanns Félags íslenskra náttúrufræðinga.
Breytingarnar fela í sér færslu á verkefnum frá heilbrigðisnefndum og heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga og til ríkisstofnana.
Skrifstofum Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verður lokað um tíma á morgun vegna fundar starfsfólks sem félagið hefur boðað til. Á fundinum verður reynt að slá að einhverju leyti á óvissuna.
Starfsfólki verði ekki boðin störf
„Það eru mjög margir óvissuþættir í stöðunni og slíkt veldur auðvitað bara titringi meðal starfsfólks og við höfum orðið mjög vör við það. Við erum í rauninni á þessum fundi að fara yfir þær upplýsingar sem við höfum fengið og reyna að kortleggja með starfsfólkinu hvaða réttindi séu undir,“ segir Þorkell í samtali við mbl.is.
Hann segir það óljóst hvort núverandi starfsfólki verði boðin störf þegar breytingarnar ganga í gegn.
„Það virðist vera sem því verði ekki boðin störf heldur verði því sagt upp og þurfi svo að sækja um.“
Kalla eftir skýrleika
Hann segir félagið hafa sent nokkrar umsagnir til Alþingis vegna draga að frumvarpinu. Einnig hafi það fundað með ráðuneytunum.
„Félagið hefur bara kallað eftir því í marga mánuði að þetta sé skýrt og þetta sé skýrt hratt og óvissu sé eytt,“ segir hann og bendir á að þegar starfsfólk flytjist milli ríkisstofnana haldi það öllum sínum réttindum. Það eigi ekki við um þá sem flytjist frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaganna.
„Ef við tökum til dæmis hina nýju stofnun Atvinnuveganna, þar eiga þeir sem flytjast innan ríkisins á milli stofnana, til dæmis frá Fiskistofu, að halda öllum sínum réttindum en þeir sem flytjast frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga eiga að missa þau öll.“
Gríðarlega skammur tími
Hann segir það afar mikilvægt þegar ráðist er í svo viðamiklar breytingar að það sé gert fumlaust og að það liggi ljóst fyrir hvað breytingarnar hafi í för með sér.
Breytingarnar eiga að öllu óbreyttu að taka gildi um áramótin 2027 og Þorkell segir það gríðarlega skamman tíma til undirbúnings.
„Okkar skilaboð til þingnefnda í þessu máli hafa bara verið mjög skýr: Skýrið málið fljótt og vel og hlustið á rök reyndra manna og kvenna í þessu máli,“ segir hann að lokum.