Atli Dagur Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans, smitaðist af berklum í febrúar og hefur síðan þá verið á lyfjakúr sem lýkur í kvöld.
Hann greinir frá þessu í pistli á Facebook-síðu sinni og bendir á að umræðan um aðbúnað á bráðamóttökunni sem var hávær í kjölfar berklasmita starfsfólks í febrúar hafi lognast niður. Hann efast um að nokkuð hafi breyst. Atli skrifar:
„Í kvöld tek ég síðustu Rimactan töfluna við berklum. 120 dagar, 4 mánuðir. Allskonar aukaverkanir. Þetta er loksins búið eða hvað? Ég get mætt í vinnuna í næstu viku og smitast aftur af berklum. Ég velti því fyrir mér hvað hafi breyst frá stóra fundinum sem bráðamóttakan hélt fyrr á árinu á Grand hótel sem vakti mikla athygli og umræðu í fjölmiðlum. Ég held nefninlega að ekkert hafi breyst. Það er nákvæmlega sama ástand. Sami innlagnarfjöldi, fólk liggur a bekkjum á göngum bráðamóttökunnar, fólk bíður sólahringunum saman á bráðamóttökunni, ekki hægt að tryggja að bráðastæði sé laust, smitvarnir í hættu og áfram er hægt að telja.“
Atli spyr hvort málið sé gleymt og grafið og hvort fjölmiðlar séu hættir að kalla eftir svörum um hvað gera eigi fyrir heilbrigðiskerfið.
„Er krísan yfirstaðin hjá yfirvöldum og þurfa ekki að svara fyrir þetta lengur ? Eigum við bara að halda áfram að hlaupa hraðar ? Á ég eða aðrir að greinast aftur með berkla ?
Ég geri mér fulla grein fyrir því að það tekur tíma að laga heilbirgðiskerfið en ríkisstjórnin hefur ekki brugðist við ákalli okkar fyrr á þessu ári eins og öll hin árin.
Þetta snýst ekki bara um bráðamóttökuna. Þetta snýst um réttindi fólks til að fá þá heilbrigðisþjónustu sem það þarf nauðsynlega á að halda.“