Atvinnuvegaráðuneytið hefur staðfest vörslusviptingu Matvælastofnunar á tveimur hundum sem voru í eigu hjóna á Suðurnesjum. Kona sem fengin var til að fylgjast með hundunum, á meðan hjónin voru á ferðalagi, hafði samband við stofnunina en hjónin reyndu að kenna henni um slæman aðbúnað hundanna.
Hjón á Suðurnesjum svipt hundum sínum eftir örlagaríkt ferðalag - Gæslukona greip í taumana